Miðflokkurinn styður kristin gildi og menningararfleið

frettinInnlendarLeave a Comment

Frettin.is hafði samband við Miðflokkinn og spurði hann út í afstöðu hans gagnvart kristnum gildum og hvort flokkurinn styddi þau sjónarmið eða hvort þau væru á stefnuskrá flokksins, þar sem margir Íslendingar styðja þá stefnu og kjósa jafnvel útfrá þeirri afstöðu.

Svörin voru eftirfarandi: 

  • Íslendingar eru kristin þjóð. Miðflokkurinn hefur á Alþingi staðið fast að baki þjóðkirkjunni.
  • Þingmenn flokksins hafa varið kirkjujarðasamkomulagið og viðbótarsamninga, sem eru kirkjunni mikilvægir.
  • Þingmenn Miðflokksins hafa varið hana fyrir öflum á þingi sem vilja rýra hana og skaða.
  • Þingmennirnir hafa varið þá vernd sem þjóðkirkjunni er veitt í stjórnarskrá lýðveldisins Íslands.
  • Miðflokkurinn hefur barist fyrir kristnum gildum, þar á meðal lífsvernd ófæddra barna í móðurkviði og að tekin verði upp kristinfræði í grunnskólum á ný.
  • Þjóðkirkjan á að vera kirkja allra landsmanna og hún á að beina kröftum sínum að hlutverki sínu, sem er boðun fagnaðarerindisins og lögmálsins.

Image

Skildu eftir skilaboð