Körfuboltamaðurinn Jonathan Isaac vill ekki fara bólusetningu

frettinErlentLeave a Comment

Tímaritið Rolling Stones birti nýlega grein sem segir frá hinum 24 ára körfuboltaleikmanni Jonathan Isaac en hann spilar með Orlando Magic í NBA deildinni. Tímaritið talar um samsæriskenningar í búningsklefunum, "anti-vaxxers," súperstjörnur sem eru að reyna forðast Covid bólusetningu. 

Hér svarar Isaac umfjöllun blaðsins í viðtali og segir blaðið hafa gefið ranga mynd af sér. „Ég er ekki á móti bóluefnum, ekki á móti lyfjum, ekki á móti vísindum. Ég komst ekki að minni niðurstöðu varðandi þessa bólusetningu með því að lesa sögu blökkumanna eða með því að horfa á Donald Trump á blaðamannafundi. Ég ber mikla virðingu fyrir öllu heilbrigðisstarfsfólki."

Hann segir jafnframt að bólusetningar eigi að vera val hvers og eins og að engan skuli þvinga eða neyða til að fara í bólusetningar. „Ég skammast mín ekki fyrir að segja að  mér líður ekki vel með að taka þetta bóluefni á þessari stundu og þegar kemur að því að setja lyf í líkamann á það að vera persónuleg ákvörðun hvers og eins." 

En þessa dagana er mikil bólusetningarherferð í gangi í Bandaríkjunum og mörgu heilbrigðisstarfsfólki sem ekki vill láta bólusetja sig verður sagt upp störfum á næstu dögum, til dæmis í New York ríki.

Það verður að teljast nokkuð sérstakt að í miðjum heimsfaraldri skuli fjölda heilbrigðisstarfsmanna verið sagt upp störfum.

Viðtalið við leikmanninn má sjá hér að neðan.


Skildu eftir skilaboð