Greiða ekki sekt fyrir ,,sóttvarnarbrot“ – meint brot ekki að finna í reglugerð

frettinInnlendar1 Comment

Mæðgum sem fóru til Spánar í sumar tókst ekki að komast í PCR-próf fyrir heimkomuna til Íslands. Ekki var hægt að panta prófið á netinu og enginn laus tími var á sjúkrahúsi þar sem mögulegt var að fara í þannig próf. Mæðgurnar tóku samskiptin við starfsfólk spítalans upp á myndband til að geta sýnt fram á að þær hafi reynt að komast í prófið. Þær sýndu lögreglunni á Leifsstöð upptökuna sem yfirheyrði þær báðar þar sem þær gátu ekki framvísað PCR-prófi.

Mæðgurnar fóru í sýnatökuna í Keflavík og aftur fimm dögum síðar eftir fimm daga sóttkví. Bæði prófin reyndust neikvæð. Flugfélagið gerði kröfu um framvísun prófana en mæðgurnar höfðu samband við utanríkisráðuneytið sem sendi þeim staðfestingu á að ekki mætti snúa Íslendingum frá landinu, þrátt fyrir að vera ekki með próf. Flugfélagið tók þær upplýsingar góðar og gildar.

Nokkrum vikum síðar berst mæðgunum sitthvor kæran þar sem segir að þær hafi gerst brotlegar á sérrefsilögum og að brotið sé Sýnataka við landamæri Íslands PCR-próf vantar eða er ófullnægjandi (4.gr. 1. mgr.)

Í 4 gr.reglugerðarinnar er hinsvegar ekki minnst á skyldu til að sýna fram á PCR-próf erlendis frá við heimkomu á landamærastöð heldur aðeins um skylduna til að fara í sýnatöku í flugstöðinni og svo í sóttkví þar til niðurstöður úr síðari sýnatöku liggja fyrir.

Hér neðar má sjá 4. gr. reglugerðarinnar og því ekki hægt að sjá annað en að kærur lögreglunnar séu hreinn tilbúningur. Mæðgunum var boðið að ljúka málinu með 100 þúsund króna sektargreiðslu. Þær hafa ekki greitt sektina og ætla ekki að gera enda er hvergi að finna meint brot í reglugerðinni sem lögreglan vísar í.

Sýnataka við landamæri Íslands

Öllum þeim sem koma til Íslands og dvalið hafa í meira en sólarhring á síðastliðnum 14 dögum í löndum sem skilgreind eru af sóttvarnalækni sem áhættusvæði er skylt að fara í sýna­töku í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða á öðrum landamærastöðvum sem sóttvarnalæknir ákveður til grein­ingar á SARS-CoV-2 veirunni og síðan í sóttkví þangað til niðurstöður liggja fyrir úr seinni sýnatöku sem í boði verður og framkvæma skal 5 dögum eftir komu til landsins. Sóttvarnalæknir skal reglulega endurmeta hvaða lönd og svæði teljist áhættu­svæði, svo sem með hliðsjón af skil­greiningu alþjóðastofnana. Börnum fæddum 2005 eða síðar er ekki skylt að fara í sýnatöku en er skylt að vera í sóttkví með foreldri eða forráðamanni. Framkvæmd sýna­töku við landamæri Íslands fer að öðru leyti fram samkvæmt leiðbeiningum sem sóttvarnalæknir gefur út. Ef sýni úr seinni sýnatöku reynist neikvætt er einstaklingi ekki lengur skylt að sæta sóttkví. Um jákvæð sýni fer eftir 10. gr.


Image

One Comment on “Greiða ekki sekt fyrir ,,sóttvarnarbrot“ – meint brot ekki að finna í reglugerð”

  1. Yfirvöld eru bara að nota þessa klikkuðu covid histeríu sem tæki til þess að reyna að fá meira fé í ríkiskassann frá almenningi. Og að lögreglan skuli taka þátt í þessu og það meira að segja án þess að hafa hugmynd um hvernig “ lögin “ hljóða er einfaldlega mjög alvarlegt mál.

Skildu eftir skilaboð