Blaðamenn hljóta friðarverðlaun Nóbels – WHO og Thurnberg meðal keppinauta

frettinErlentLeave a Comment

Tveir blaðamenn, þau Maria Ressa frá Filippseyjum og Dimitrí Múratov frá Rússlandi hlutu  friðar­verðlaun Nó­bels í ár. Þetta var tilkynnt af norsku Nó­bels­stofn­un­inni í Osló nú í morgun. Verðlaun­in hrepptu þau fyr­ir bar­áttu sína fyr­ir tján­ingarfrelsinu í heima­lönd­um sínum.

Nefndin tilkynnti að þau væru full­trú­ar allra fjölmiðlamanna sem standi fyr­ir tján­ing­ar­frelsinu í heimi þar sem bæði lýðræðið og fjöl­miðlafrelsi á undir högg að sækja.

Verðlaunin eru samtals 10 milljónir sænskra króna og voru Ressa og Múratov valin úr 329 manna hópi. Þeir sem einnig voru sagðir koma til greina eru þau Greta Thurnberg umhverfissinni, fjölmiðlasamtökin Reporters Without Borders (RSF) og Alþjóðaheilbrigðisstofnunin. 

Skildu eftir skilaboð