Grunur um hryðjuverkaárás í Noregi

frettinErlentLeave a Comment

Nokkrir hafa látið lífið og aðrir særst af árásarmanni í norska bænum Kongsberg, að sögn norsku lögreglunnar.

Grunaður maður hefur verið handtekinn, sagði blaðamaður hjá lögreglunni í Noregi við CNN nú í kvöld.

Árásamaðurinn er sagður hafa notað boga og örvar við illvirkið að sögn lögreglunnar í Kongsberg.

Lögreglu var fyrst tilkynnt um hinn grunaða árásarmann klukkan 18:15 að staðartíma. Hún bætti við að sá grunaði hafi ráðist á fólk á nokkrum stöðum áður en hann var handtekinn.

Kongsberg er staðsett 85 kílómetra vestur af höfuðborginni Ósló.

Lög­regl­an boðar ann­an blaðamanna­fund klukk­an 20:00 á ís­lensk­um tíma. 

Skildu eftir skilaboð