Fv. þingmenn telja að blása þurfi til nýrra kosninga

frettinInnlendar

Fyrrverandi þingmenn segja ekkert annað í stöðunni eftir fregnir dagsins en að blása til nýrra þingkosninga. Lögreglan á Vesturlandi gaf í dag út sektir á meðlimi yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi en ekki er hægt að fullyrði hvort átt hafi verið við óinnsigluð kjörgögn í talningarsalnum á Hótel Borgarnesi.

Norðvesturkjördæmi segist ekki ætla að borga sektirnar. Þá hefur lögreglan jafnframt skilað svörum við fyrirspurnum undirbúningskjörbréfanefndar um rannsókn á upptökum af hótelinu. Í svörum lögreglunnar kemur meðal annars fram að starfsfólk hafi farið um talningasalinn þegar yfirkjörstjórn var ekki viðstödd og að ekki sé hægt að útiloka að átt hafi verið við kjörgögnin.

„Já, lögreglustjórinn á Vesturlandi gefur það út að yfirkjörstjórn hefur gerst brotleg við kosningalög og það staðfestir kæruefni mitt og okkar Guðmundar. Þetta eru mikil tíðindi vegna þess að það yrði líka óheppilegt ef kjörbréfanefnd Alþingis og Alþingi sjálft myndi staðfesta kjörbréf byggð á ólögmætri niðurstöðu,“ sagði Rósa Björk Brynjólfsdóttir, frambjóðandi í kosningum fyrir Samfylkinguna og fyrrverandi þingkona í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Hún telji vænlegast að blása til nýrra kosninga.

„Það yrði hreinlegasta niðurstaðan að fara í uppkosningu enda leyfa kosningalögin það en nú er bara að sjá hvaða ákvörðun undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa tekur.“

Ljóst sé eftir tíðindi dagsins að ekki megi láta við sitja í málinu eins og það stendur núna.

„Það er alveg ljóst eftir tíðindi dagsins að þetta sem við erum með í höndunum núna, það er engin leið að við getum hleypt þessu í gegn á þennan hátt, eins og kjörbréfin hafa verið gefin út. Þá erum við að opna eitthvað pandorubox sem við áttum okkur ekki einu sinni á hvernig mun í raun enda og hvernig það mun skella framan í andlitin á okkur. Við verðum að leiða það rétta fram, þetta snýst um réttlæti ekki þægindi og ég kalla eftir þingmönnum og ég kalla eftir því frá Alþingi að sýna dug og hugrekki til þess að leiða það rétta fram segir Guðmundur.“

Visir greindi frá.