Þingmenn settir í straff á Twitter fyrir að segja Rachel Levine vera karlmann

frettinErlent

Jim Banks og Marjorie Taylor Greene, þingmenn repúblikana í Bandaríkjunum, voru sett í skammakrókinn af Twitter í vikunni sem leið og aðgangi þeirra lokað tímabundið.

Ástæðan er sú að Jim Banks sagði að Rachel Levine heilbrigðisráðherra í ríkisstjórn Bidens væri karlmaður en Levine er transkona frá því 2011. Áður var hún gift Mörthu Peaslee Levine og á með henni tvö börn.

Jim Banks sagði á laugardag að Twitter aðgangi hans hafi verið lokað eftir að hann tísti: Karlmaður hefur hlotið titilinn Fyrsti kvenkyns fjögurra stjörnu aðmírállinn og vísaði þar til þess að Levine sór nýlega embættiseið sem fjögurra stjörnu aðmíráll í sérsveit heilbrigðiseftirlits Bandaríkjanna.

Twitter setti viðvörun á færslu Greene og merkti hana sem „hatursfulla" en fjarlægði þó ekki færsluna: „Gaur sem var karlmaður fyrstu 50 ár ævi sinnar er ekki fyrsti kvenkyns eitt né neitt."

Heimild.