Hagsmunasamtök heimilanna skora á ríkisstjórnina að hækka ekki vexti

frettinInnlendar

Hagsmunasamtök heimilanna ítreka áskorun samtakanna til
ríkisstjórnarinnar og lánveitenda um að halda aftur af
vaxtahækkunum, sem send var fjölmiðlum í fyrradag. Vakin er athygli
á því að samtökin eru meðal fjölmennustu félagasamtaka á
Íslandi með 8.400 félagsmenn og hafa haldið þeim fjölda meira og
minna frá hruni. Vaxtahækkanir eru ekkert lögmál og engin þörf á þeim

Áskorun til ríkisstjórnarinnar og lánveitenda um að halda aftur af
vaxtahækkunum

Hagsmunasamtök heimilanna vekja athygli á hvernig heimilin eru nú sem
oftar, gjörsamlega berskjölduð fyrir vaxtaákvörðunum
lánastofnana.

Eftir að hafa verið í sögulegu lágmarki í ársbyrjun hafa
meginvextir Seðlabanka Íslands verið hækkaðir þrisvar, um 0,25
prósentustig í hvert skipti. Flestir lánveitendur hafa fylgt þeim
hækkunum dyggilega eftir með sambærilegum hækkunum á vöxtum
húsnæðislána og þannig lagt auknar fjárhagslegar byrðar á
stærstan hluta íslenskra heimila.

Þessar vaxtahækkanir eru ekkert lögmál og engin þörf á þeim.

Það sem af er ári hafa bankarnir skilað vænum hagnaði eða á
hálfu ári meira en árshagnaði þeirra hvert undanfarinna þriggja
ára þrátt fyrir þrengingar vegna heimsfaraldurs. Á næstu dögum
birta þeir afkomutölur þriðja ársfjórðungs sem hefur verið
boðað að verði enn betri.

Með svo góða afkomu sem raun ber vitni geta bankarnir ekki með
nokkru móti haldið því fram að nein þörf sé á því að hækka
vexti húsnæðislána. Nægur er hagnaðurinn fyrir og engin þörf á
að sækja hærri vaxtatekjur úr vösum neytenda.

Hagsmunasamtök heimilanna skora á stjórnendur og eigendur bankanna
að láta neytendur njóta góðs af velgengninni og sýna
samfélagslega ábyrgð í verki með því að halda aftur af frekari
vaxtahækkunum á húsnæðislánum.

Hagsmunasamtökin minna jafnframt á þá staðreynd að bankarnir
skulda heimilum landsins enn þá töluverðar vaxtalækkanir. Á
tímabili munaði 230% á því sem vextir bankanna voru og því sem
þeir hefðu átt að vera ef vaxtalækkanir seðlabankans skiluðu sér
jafn vel til neytenda og hækkanir.

Heimilin eiga þessar vaxtalækkanir inni hjá lánastofnunum og þeim
ber að gera upp skuld sína við þau og endurgreiða oftekið fé.
Það minnsta sem þeir gætu gert væri að hækka ekki vexti og draga
nýlegar hækkanir þeirra til baka.

Heimilin eru ekki veiðilendur bankanna til að auka nú þegar
stjarnfræðilegan hagnað þeirra. Vissulega hefur verðbólga aukist
en bankarnir eru augljóslega ekki á flæðiskeri staddir og þurfa
ekkert á því að halda að hækka álögur á heimili landsins sem
mörg hver berjast nú þegar í bökkum.

Gæta þarf að og verja réttarstöðu neytenda gagnvart þessu
ofurvaldi.

Tveir af þremur bönkum eru í meirihlutaeigu ríkisins.

Hagsmunasamtök heimilanna krefjast þess að ríkisstjórnin beiti
eigendavaldi sínu og grípi inn í þessa oftöku af varnarlausum
heimilum landsins sem er algjörlega ónauðsynleg, ekki síst með
hliðsjón af gríðarlegum hagnaði bankanna.

Heimilin eru ekki fóður fyrir bankana!

Hagsmunasamtök heimilanna