Fyrsta Covid-19 tilfellið greinist á Vináttueyjum hjá fullbólusettum einstaklingi

frettinErlent

Yfir­völd á Tonga (Vinaeyjum) í Suður-Kyrra­hafi hafa stað­fest að fyrsta tilfellið af Covid-19 hafi nú greinst á eyjunni. Um hundrað þúsund manns búa á Vinaeyjum en ekki eitt einasta smit hefur greinst þar hingað til þó hver bylgja far­aldursins á fætur annarri hafi riðið yfir heims­byggðina síðustu á­tján mánuði.

Í frétt New York Times kemur fram að smitið hafi greinst hjá full­bólu­settum ein­stak­lingi sem var ný­kominn til eyjarinnar með flugi frá Nýja-Sjá­landi. 215 manns voru í flug­vélinni sem kom frá borginni Christchurch.

Ljóst er að yfir­völd taka þessu al­var­lega og sagði Pohiva Tuionetoa, for­sætis­ráð­herra Tonga, að í­búar gætu þurft að búa sig undir tak­markanir á næstu dögum og jafn­vel út­göngu­bann ef fleiri smit greinast.

Um þriðjungur full­orðinna á Tonga er full­bólu­settur og hafa yfir­völd nú á­kveðið að leggja aukinn þunga í bólu­setningar meðal lands­manna þrátt fyrir að engin smit höfðu greinst áður en bólusetningar hófust og fyrsta smitið greinist hjá fullbólusettum einstaklingi.

Forsætisráðherrann, Pohiva Tuionetoa, varar við því að fleiri gætu verið smitaðir. Heilbrigðisstarfsmenn, lögreglumenn og aðrir sem komust í snertingu við þann smitaða eru nú í sóttkví.