Helgi Örn Viggósson skrifar:
100% innlagna á gjörgæslu eru fullbólusettir einstaklingar segir belgískur læknir í sjónvarpsviðtali á ATV (sjá viðtal neðar.)
Fullbólusettir í Belgíu eru núna 74%, skv. Our World in Data. Þessi frétt frá Belgíu er ekki einsdæmi, þetta er að gerast víðast. Hér er viðtal við framkvæmdastjóra lækninga hjá stóru sjúkrahúsi í Ísrael, þar sem fram kemur að 95% alvarlega veikra C19 sjúklinga sem lagðir eru þar inn séu fullbólusettir:
Það eru ekki aðeins heilbrigðisyfirvöld hérlendis sem fara frjálslega með sannleikann til að narra fólk í bólusetningu á fölskum forsendum. Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna (CDC) er líklega verst allra, a.m.k. ef horft er til vestrænna lýðræðisríkja. Öldungadeildarþingmaðurinn Ron Johnson, tók það fyrir á þinginu þar vestra um daginn, þar sem hann bar saman gríðarlegt misræmi á gögnum frá CDC og bresku sóttvarnastofnuninni (HSA):
hærra: (“Increases in COVID‑19 are unrelated to levels of vaccination across 68 countries and 2947 counties in the United States.")
Pólitíska stofnunin CDC segir eitt á meðan vísindastofnunin CDC segir allt annað, t.d. hér ein stúdía frá hinni síðarnefndu, sem fjallaði um hópsmit í Massachusetts, sem sýndi fram á -28% virkni tilraunabóluefnana gegn smiti. Ég fjallaði um þessa stúdíu á sínum tíma:
Og önnur þar sem niðurstaðan var að veirumagn smitaðra með einkenni er heldur meira hjá bólusettum og að þeir séu jafnframt 3x líklegri til að vera einkennalitlir ofursmitarar í sambanburði við óbólusetta: