Ökumaður rafhlaupahjóls lést í umferðarslysi við Sæbraut

frettinInnlendar

Banaslys varð norðan gatnamóta Kringlumýrarbrautar og Sæbrautar á níunda tímanum í morgun þegar rafmagnshlaupahjól og létt bifhjól rákust þar saman. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Annar ökumannanna lést og hinn er sagður alvarlega slasaður og liggur á gjörgæslu. Tilkynning um slysið barst klukkan 8:08, en myrkur og blautt var á vettvangi.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins. Um er að ræða fyrsta banaslysið hér á landi þar sem rafhlaupahjól kemur við sögu.

Guðmundur Páll Jónsson, lögreglufulltrúi á höfuðborgarsvæðinu, segir málið í rannsókn. Hann segir meðal annars til skoðunar hvort átt hafi verið við hjólin til að auka hraða þeirra.