Óbólusettir þingmenn í Lettlandi fá ekki launagreiðslur

frettinErlent

Þingmenn Lettlands sem ekki hafa verið bólusettir við Covid eða eru ekki með mótefni eftir Covid sýkingu munu ekki fá greidd laun og mega ekki lengur taka þátt í atkvæðagreiðslum þingsins.

Þingmenn samþykktu ákvörðunina á föstudag með 62 atkvæðum af 100.

„Frá og með 15. nóvember mun þingmaður aðeins eiga rétt á að taka þátt í starfi Saeima, þjóðþings Lettlandi, ef hann hefur lagt fram COVID-19 vottorð sem staðfestir bólusetningu eða fyrrum veikindi af Covid," segir í yfirlýsingu frá þinginu.

„Mánaðarlaunum og öðrum þingmannagreiðslum verður haldið eftir hjá þeim þingmönnum sem munu ekki eiga rétt á þátttöku í störfum þingsins," segir ennfremur í yfirlýsingunni.

Fyrirkomulagið á einnig við um sveitarstjórnarmenn og mun taka gildi þegar núverandi lokunaraðgerðir sem standa yfir í mánuð taka enda.