Sóknarmaðurinn Sergio Aguero hættir í fótbolta vegna hjartavanda

frettinErlent

Argentínski sóknarmaðurinn Sergio Aguero sem spilar fyrir Barcelona, mun tilkynna breytingar í næstu viku samkvæmt áreiðanlegum og átakanlegum fréttum frá Spáni.

Aguero er markahæsti leikmaður Manchester City frá upphafi en fékk fyrir hjartað aðeins 33 ára gamall í viðureign Barcelona og Alaves í síðasta mánuði.

Aguero mun upplýsa í næstu viku að hann sé að hætta í fótbolta.

Fregnir frá Spáni vekja nú athygli á að Aguero ætli að leggja skóna á hilluna á næstu dögum. Aguero mun upplýsa í næstu viku að hann sé að hætta í fótbolta.

Blaðamaður Barcelona, Gerard Romero, greindi frá þessu og tísti: „Kun Aguero hættir störfum."

Aguero neyddist til að hætta í fótbolta vegna hjartavanda. Það hefur verið boðaður blaðamannafundur til að tilkynna um starfslok hans í næstu viku.

Mörg önnur stór spænsk rit voru fljót að styðja fréttirnar.