Enn einn fótboltamaðurinn hnígur niður – nú John Fleck hjá Sheffield

frettinErlent

John Fleck, miðjumaður Sheffield United, var fluttur á spítala eftir að hann hné niður í leik í Championship-deildinni í kvöld.

Sheffield United mætti Reading og var leikurinn stoppaður í 11 mínútur eftir að Fleck féll til jarðar. Hann fékk læknisaðstoð og gat staðið upp með hjálp súrefnisgrímu.

Fleck, sem er þrítugur, var með meðvitund þegar hann var fluttur á sjúkrahús.

Leikurinn endaði með 1-0 sigri Sheffield United. Félagið ætlar að veita frekar upplýsingar um stöðu Fleck þegar þær berast.

Það hefur gerst í auknum mæli að undanförnu að fótboltamenn hnigi niður í miðjum leik. Það er mikið áhyggjuefni (fotbolti.net).

Þetta kom fram í helstu fjölmiðlum erlendis í gær og á fotbolti.net hér á landi.

Frettin.is birti um daginn lista sem þýskir blaðamenn höfðu tekið saman yfir 75 íþrótta-og afreksmenn sem dáið hafa skyndilega eða orðið alvarlega veikir.

Hér er fréttin með listanum og er ekki aðeins um að ræða fótboltamenn.