Lögmaður kærður fyrir að misnota aðgang Innheimtustofnunar að Credit Info

frettinInnlendar

Innheimtustofnun sveitarfélaga hefur kært lögmanninn Ármann Fr. Ármannsson fyrir að hafa misnotað aðgang stofunarinnar að Credit info sem að hann hafi komist yfir gögn með ólögmætum í hætti. Í umfjöllun Stundarinnar um málið kemur fram að hin meinta misnotkun á að hafa staðið yfir í að minnsta kosti sjö ár og á tímabilinu hafi Ármann flett upp tugum kennitalna í kerfum Credit Info og aflað sér þannig upplýsinga um fjárhagslega stöðu einstaklinga og lögaðila.

Samkvæmt frétt Stundarinnar komst málið upp í október á síðasta ári í kjölfar kvartana til Innheimtustofnunar sveitarfélaga frá fólki sem að furðaði sig á því af hverju fjárhaglegum upplýsingum um það hefði verið flett upp af stofnuninni og hver heimildin fyrir því væri.

Í kjölfar skoðunar hafi komið í ljós ákveðið mynstur sem var á þá leið að uppflettingarnar tengdust þrotabúum sem áðurnefndur lögmaður, Ármann Fr. Ármannsson, var skiptastjóri í. Tengsl Ármanns við Innheimtastofnun sveitarfélaga voru þau að hann starfaði þar í sumarafleysingum og hlutastarfi fyrir um áratug. Lokað var á aðgang hans eftir starfsflokin en í frétt Stundarinnar kemur fram að mögulega hafi hann áttað sig á því hvernig lykilorð samstarfsfélaga hafi verið upp byggð og þannig komist inn í kerfið.

Í kjölfar skoðunar Innheimtustofnunar hafi málið verið kært til lögreglu og tilkynnt til Persónuverndar. Samkvæmt heimildum Stundarinnar hefur lögreglan lokið rannsókn málsins og er nú statt á ákærusviði lögreglu.

Þann 8. maí 2019 birti Fréttatíminn upplýsingar þess efnis að Credit info heimili ólöglega vöktun á fjármálum sínum.

Heimild.