Ís­lenska kvennalandsliðið Evrópu­meistari í hóp­fim­leikum

frettinInnlendar

Íslenska kvennalandsliðið vann glæsilegan sigur og varð Evrópumeistari í hópfimleikum í dag með 57,250 stig. Liðið fékk jafn mörg stig og Svíþjóð en Ísland vann tvö áhöld, gólf og trampólín. Svíþjóð hafði einungis betur á dýnunni og fór því titillinn heim til Íslands.

Ís­lenska kvenna­lands­liðið byrjaði mótið á frá­bæru trampólíni og fór liðið í gegnum öll stökkin sín án falls.

Kol­brún Þöll Þorra­dóttir, ein reynslu­mesta lands­liðs­konan í liðinu,var með eitt erfiðasta stökk mótsins er hún gerði tvö­falt heljar­stökk með beinum líkama og þremur og hálfri skrúfu.

Kol­brún lokaði svo síðustu um­ferð ís­lenska liðsins á stökki yfir hest og negldi það. Ís­lensku stuðnings­mennirnir tylltust í kjöl­farið enda skilaði þetta mikil­vægum stigum í bar­áttu liðsins um Evrópu­meistara­titilinn.

Ís­lenska kvenna­liðið lenti í smá örðug­leikum á trampólíni í undan­keppninni en það er ljóst að þjálfarar liðsins hafa gert við­eig­andi breytingar fyrir úr­slitin í dag. Liðið hækkaði sig um 1,5 stig frá undan­keppnina á trampólíninu og fékk 17,750 stig.

Næst fór liðið á gólf en gólfæfingarnar hafa verið sterkasta á­hald ís­lenska liðsins. Stelpurnar voru með hæstu ein­kunn mótsins á gólfi í sínum flokki í undan­keppni og gerðu þær enn betur í úr­slitunum. Liðið fékk 22,300 stig fyrir gólfið sem og munaði bara 0,6 stigum á Ís­landi og Sví­þjóð eftir tvö á­höld.

Ís­lensku stelpurnar áttu þá bara dýnuna eftir á meðan þær sænsku áttu eftir að fara á trampólín.

Sænsku stelpurnar voru með tvö föll á trampólíninu og var því öll pressan á íslenska liðinu fyrir dýnuna. Íslenska liðið ákvað að gera þetta spennandi og var einnig með tvö föll á dýnunni og því allt í járnum.

Andrúmsloftið var rafmagnað þegar stelpurnar biðu eftir að sjá lokaeinkunn liðsins og ætlaði allt um koll að keyra úrslitin voru ljós.