Heimilisfólk hjúkrunarheimila eins og fangar þrátt fyrir þrjár bólusetningar

frettinPistlar

G. Helga Ingadóttir skrifar

Þrátt fyrir að vera búin að fá örvunarskammtinn gegn Covid eru reglur inni á dvalarheimilum aldraðra svo stífar að meira frelsi er á Litla Hrauni.

Bréf til aðstandenda:

Kæru aðstandendur

Við viljum ítreka fyrri sendingu til ykkar um reglur sem eru í gildi hér á Lundi vegna ástandsins í samfélaginu sökum Covid.

Allir gestir eru beðnir um:

1. að spritta sig við komu í hús

2. að bera grímu á meðan á dvöl stendur

3. að dvelja eingöngu á herbergi heimilismanns á meðan á heimsókn stendur

4. að staldra ekki við á göngum og tala við starfsfólk heldur hringja í okkur

5. að dvelja ekki í sameiginlegum rýmum

6. að fara ekki með íbúa af heimilinu

Við biðjum gesti að koma ekki í heimsókn ef þeir:

Eru í sóttkví eða smitgát.

Eru í einangrun (einnig meðan beðið er niðurstöðu úr sýnatöku).

Hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.

Eru með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang).

Hafa dvalið erlendis undanfarna daga og eru ekki komnir með neikvæða niðurstöðu úr skimun eftir komuna til landsins. Þetta á við um bólusetta gesti, óbólusettir þurfa að gangast undir tvöfalda skimun og sóttkví eins og reglur á landamærum segja til um.

Þessar reglur eru til þess gerðar að vernda íbúa okkar fyrir smiti

Jú, jú reglurnar eru til að vermda íbúa gegn smiti, en til hvers er þá bólusetningin og örvunarskammturinn?