Maðurinn sem leitað var að fannst látinn

frettinInnlendarLeave a Comment

Maðurinn sem lýst var eftir síðdegis í gær fannst látinn í kvöld. Hann hét Almar Yngvi Garðarsson og var 29 ára. Hann lætur eftir sig sambýliskonu og einn son.
Ekki er talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti.
Aðstandendur vilja koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem aðstoðuðu við leitina, segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðbogarsvæðinu.

Fyrr í kvöld var sagt frá því að bifreið sem talið er að Almar haft til umráða hafi fundist í Hafnarfjarðarhöfn.

Skildu eftir skilaboð