Sóttvarnalæknir fer aftur með fleipur – rangar fullyrðingar um tíðni hjartabólgu

frettinInnlendarLeave a Comment

Frosti Sigurjónsson fyrrverandi alþingismaður vakti athygli á því á facebook síðu sinni í gær að Þórólfur Guðnason hafi fullyrt að tíðni hjartabólgu sé miklu hærri hjá þeim sem hafa fengið Covid, en þeim sem hafa fengið hjartabólgu eftir bólusetninguna.

Frosti bendir á nýja rannsókn á gögnum frá Bretlandi sem komi því á óvart. Rannsóknin gengur í berhögg við fullyrðingar Þórólfs.

,,Karlmenn undir 40 ára aldri eru í töluvert meiri hættu á að fá hjartabólgu eftir seinni skammt bóluefnis en af covid19," segir Frosti og vísar í rannsóknina sem má skoða hér.

Í annarri rannsókn sem m.a. Oxford tekur þátt í koma einnig fram sláandi niðurstöður, en þar er um að ræða u.þ.b. tvöföldun í áhættu eftir fyrstu sprautu og svo eykst áhættan eftir seinni sprautu, og svo aftur milli annarrar sprautu og örvunarskammts. Þá rannsókn má skoða hér.


Skildu eftir skilaboð