Sölvi Tryggvason snýr aftur – allir þættirnir aðgengilegir á ný

frettinInnlendarLeave a Comment

Sölvi Tryggvason fjölmiðlamaður hefur opnað aftur fyrir aðgang að hlaðvarps-þáttum sínum sem voru gríðarlega vinsælir árið 2020-21 og er óhætt að segja að þættirnir hafi verið vinsælustu "podcast" þættirnir hér á landi.

Þann 12. maí á þessu ári var öllum hlaðvarpsþáttum Sölva eytt af YouTube og af hlaðvarpsveitum. Var það gert í kjölfar fréttaflutnings um meint ofbeldi hans og varð hann í kjölfarið fyrir barðinu á útilokunarmenningunni svokölluðu. Í kjölfar sögusagnanna um ofbeldið gaf Sölvi út hlaðvarpsþátt þar sem hann var viðmælandinn og vakti þátturinn töluverða athygli. Var það síðasti þáttur Sölva en nú hefur hann aftur stigið fram á sjónarsviðið og margir eflaust fagna því.

Aðdáendur hlaðvarpsþáttanna geta nálgast alla gömlu þættina í gegnum vefsíðuna solvitryggva.is en áskrift að efninu kostar 990 krónur á mánuði.

„Með því að gerast áskrifandi að Podcast með Sölva Tryggva færð þú aðgang að meira en 100 eldri þáttum, alls kyns aukaefni og 3-4 nýjum þáttum í hverjum mánuði. Um leið ert þú að hjálpa okkur að halda áfram þeirri vegferð að hafa áhrif á þjóðmálaumræðuna og geta boðið uppá innihaldsríkar og djúpar samræður með áhugaverðum einstaklingum í hverri viku. Auk þess verða dregnir út heppnir áskrifendur í hverjum mánuði sem fá veglega vinninga,“ segir í lýsingu um áskriftina á vefsíðunni.

Skildu eftir skilaboð