Inga Sæland: Bóluefnin eru tilraunalyf og við erum tilraunadýrin

frettinInnlendar1 Comment

Inga Sæland formaður Flokks fólksins, var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur í síðdegisútvarpinu í dag.

Inga segir að þó Covid bóluefnin virðist draga úr alvarleika veikinda þeirra sem greinast með Covid sé það staðreynd að um tilraunalyf sé að ræða og að almenningur séu tilraunadýrin.

Inga segir að þegar hún hafi horft á fund velferðarnefndar Alþingis þar sem bólusetningar barna voru til umfjöllunar, hafi henni orðið verulega brugðið þegar hulunni var svipt af því, að einu rannsóknirnar sem gerðar hefðu verið á bóluefnunum væru gerðar af lyfjaframleiðendunum sjálfum og að tilraununum ljúki ekki fyrr en árið 2026.

Þá rifjaði Inga upp hversu mikil leynd hvílir yfir samningunum við lyfjarisana sem einungis útvaldir og örfáir hafa séð, en Inga var ein þeirra sem fengið hefur að sjá samninginn að ströngum skilyrðum uppfylltum.

„við fengum að sjá þetta í mýflugumynd í leyniklefa, þetta var ekki þýtt á íslensku, við máttum ekki taka myndir af þessu eða ljósrita“ segir Inga og bendir á að samningurinn er á annað hundrað blaðsíður sem ekki sé auðvelt að renna í gegnum á stuttum tíma“

Afar illa við að börn séu sprautuð með órannsökuðum lyfjum

Hvað bólusetningar barna 5-11 ár segir Inga að spyrja verði mjög gagnrýnna spurninga eins og þá hvort verið sé að nota börn sem tilraunadýr og þau sprautuð í þeim tilgangi að koma í veg fyrir að þau smiti hina fullorðnu.

„Er það virkilega þannig að við séum að taka þessa áhættu með börnin með nánast engum rannsóknum sem liggi að baki bóluefnunum“ segir Inga“.

Inga segir að ef hún réði hvernig þessum málum væri háttað þá myndi ekkert barn verða sprautað með einni einustu sprautu af tilraunalyfjunum.

Þáttinn í heild sinni má hlusta á hér.

One Comment on “Inga Sæland: Bóluefnin eru tilraunalyf og við erum tilraunadýrin”

  1. Fólk einhvern veginn hefur gleymt því að COVID einkenni hafa ALLTAF verið væg fyrir fólk yngra en 70ára. Nema þú setur þá í öndunarvél þá ertu nánast bara drepinn við það. Ég man svo innilega eftir því þegar okkur var lofað að þetta bóluefni myndi stoppa útbreiðslu og smit. og svo allt i einu i agust 2021 þá byrjar þeir að ljúga því að okkur að það hjalpar við að einkenni eru væg. ÞAU HAFA ALLTAF VERIÐ VÆG. Það er svona „mass geðveiki“ gangi i heiminum i dag, nánast allir heilaþvegnir og með svona „buyers remorse“ eins og þetta fólk sé i einhverjum COVID-VAX-CULT

    Viðbjóður.

Skildu eftir skilaboð