Bretum stefnt fyrir alþjóðaglæpadómstólinn

frettinErlentLeave a Comment

Samantekt eftir Hall Hallsson blaðamann og sagnfræðing

Þann 6. desember síðastliðinn var lögð fram málshöfðun fyrir Alþjóða Glæpadómstólnum í Haag á hendur eftirtöldum aðilum fyrir brot á Nurnberg sáttmálanum gagnvart breskum almenningi. Þeir eru: Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands, Tedros Adhanhom forstjóri WHO, Christopher Whitty landlæknir Bretlands, Matthew Hancock fyrrum heilbrigðisráðherra Bretlands, Sajid Jovid, núverandi heilbrigðisráðherra, Anthony Fauci, forstjóri Smitsjúkdómastofnunar Bandaríkjanna, Bill Gates III & Melinda Gates Foundation, Klaus Schwab forstjóri World Economic Forum, Dr. Ravid Shah forstjóri Rockefeller Foundation, Albert Bourla forstjóri Pfizer, Stephane Bancel forstjóri Astra Zeneca, Pasdcal Soriot forstjóri Moderna, Alex Gorsky forstjóri Johnson & Johnson fyrir brot á ákvæðum Nurnberg-sáttmálans. Þessir aðilar eru sakaðir um glæpi gegn mannkyni og stríðsglæpi eins og þeir eru skilgreindir í Rómar sáttmálanum, greinum 6, 7, 8, 15, 21 & 53.

Hannah Rose lögmaður

Það var lögmaðurinn Hannah Rose, ásamt sjö öðrum sem höfðaði málið fyrir Alþjóða Glæpadómstólnum í Haag fyrir brot á Nurnberg-sáttmálanum af hálfu fórnarlamba í Bretlandi og bresks almennings. Málshöfðunin var afhent saksóknara dómstólsins, sjá yfirlýsingu saksóknara um móttöku.

ALÞJÓÐA GLÆPADÓMSTÓLLINN Í HAAG

Alþjóðaglæpadómstóllinn var stofnaður upp úr aldamótunum síðustu & þá staðið við fyrirheit sem gefin voru með Nürnberg-réttarhöldunum. Atburðir í Rúanda og á Balkanskaga ýttu undir stofnun dómstóls, sem réttaði í málum þeirra sem sakaðir eru um þjóðarmorð, glæpi gegn mannkyni og stríðsglæpi. Á annað hundrað ríki hafa undirritað Rómarsáttmálinn frá 1998. Alþingi Íslendinga fullgilti samninginn á vordögum 2000, en Kína, Rússland og Bandaríkin gerðu það ekki. Bill Clinton forseti undirritaði sáttmálann áður en hann hvarf úr forsetastóli í Bandaríkjunum en gerði ekkert til að beita sér fyrir fullgildingu samningsins. Bretar eru aðilar að Rómarsáttmálanum.

NAZISTAR Í NURNBERG

Nazistar voru leiddir fyrir Nurnberg dómstólinn í Þýskalandi og sömuleiðis japanskir stríðsglæpamenn í Tókýó eftir síðari heimsstyrjöldina. Eftir réttarhöldin voru siðareglur samdar sem leiddu til Nurnberg sáttmálans um skilgreiningu á stríðsglæpum. Enginn, sama hvers ríkur eða voldugur, enginn þjóðhöfðingi er ofar lögum, samkvæmt sáttmálanum. Landslög einstakra þjóða veita ekki skjól frá sáttmálanum.

Vegna tilrauna lækna nazista í fangabúðum Þjóðverja eru reglur sérlega strangar og siðareglur um tilraunir á lyfjum þar sem skylt er að afla upplýsts samþykkis, án allra þvingana eða hótana við lyfjatöku. Það er vel þekkt, að fyrir uppskurð þarf læknir upplýst samþykki sjúklings um hugsanlega neikvæðar afleiðingar aðgerðar, þar á meðal sýkingar, blæðingar, taugaskaða eða dauða. Sjúklingur undirritar yfirlýsingu eftir að læknir hefur farið í gegn um upplýsingar um neikvæðar afleiðingar. Og það er vel þekkt, að í hvert sinn sem sjúklingur fær afhent lyfseðil-skylt lyf, þá skulu allar hugsanlegar neikvæðar afleiðingar tilgreindar á lyfseðlinum og útskýrðar af lyfjafræðingi. Vaksín eða bólusetningar ættu að falla undir sömu reglur, en hefur ekki verið fylgt. Manneskja sem fær sprautu er ekki gerð grein fyrir hættu af myndun blóðtappa, blæðingum, segamyndun í heila - heilablæðingum, hjartabólgum og dauða.

Hannah Rose lögmaður tekur fram er lýtur að Nurnberg sáttmálanum, að læknum og lyfjaframleiðendum beri að fylgja sömu siðareglum. Hver læknir eða vísindamaður sem staðinn er að því að brjóta siðareglur sáttmálans, kann að eiga yfir höfði sér málshöfðun fyrir Alþjóða Glæpadómstólnum í Haag. Hannah Rose bendir á að 1. grein sáttmálans kveði á um upplýst samþykki manneskju við læknis-meðhöndlun og þátttöku í tilraun. Manneskja hefur frjálst val um þátttöku án þvingana, blekkinga & sviksemi af hvers kyns tagi.

KÓRÓNA-SKANDALLINN

Einn alþekktasti lögmaður Þýskalands, Reiner Fuellmich vinnur að undirbúningi málshöfðunar. Hann er þekktur fyrir að lögsækja Deutche Bank og Volkswagen fyrir sviksemi og stærsta skipafélag heims, Kuehne og Nagal fyrir mútur. Í tæp eitt ár hefur Fuellmich stýrt rannsókn hóps alþjóðalögmanna á spillingu og svikum í tengslum við covid og hörmulegum afleiðingum þeirra. „Þessi covid-krísa ætti í samræmi við það sem við nú vitum að vera kölluð „Kóróna-Skandallinn“ og hinir ábyrgu saksóttir fyrir glæpi og til greiðslu skaðabóta,“ segir Fuellmich.

HVAÐ UM ÍSLAND?

Aukaverkanir hér á landi skipta þúsundum og alvarlegar aukaverkanir hundruðum. Arnar Þór Jónsson varaþingmaður & fyrrverandi héraðsdómari er að undirbúa málshöfðun á hendur ríkinu vegna blæðinga fjölda kvenna. Lyfjastofnun hefur kært Kalla Snæ heimilislækni fyrir að mæla með Nóbelslyfinu Ivermectin. Hann hefur verið yfirheyrður af lögreglu og á yfir höfði sér fimm ára fangelsi, fyrir það eitt að mæla með Nóbels-lyfi sem hefur reynst afar vel. Þá hafa vestrænar lyfjastofnanir – þar á meðal hin íslenska – haldið lyfinu Hydroxychloroquine frá fólki en það hefur verið notað í 80 ár til að meðhöndla malaríu og samþykkt af FDA bandarísku lyfjastofnunni.

Íslensk stjórnvöld hafa ekki fylgt reglum Nurnberg sáttmálans heldur haldið leyndum samningi við lyfjarisann Pfizer og þeirri staðreynd að verið er að gera vaksín-tilraunir á íslenskum almenningi með ófyrirséðum afleiðingum. Dómstólar munu væntanlega úrskurða hvort slíkt sé brot á Nurnberg sáttmálanum og glæpur gegn mannkyni. Ef hið sama gerist hér og gerst hefur gagnvart breskum almenningi, þá kunna forsætisráðherra, heilbrigðisráðherra fyrrverandi og núverandi, landlæknir, sóttvarnalæknir, forstjóri Lyfjastofnunar, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og umboðsmenn lyfjarisanna eiga yfir höfði sér málssóknir fyrir Alþjóða Glæpadómstólnum í Haag.

Hér að neðan má sjá stefnuna sem borist hefur dómstólnum.


Skildu eftir skilaboð