Sérvitringarnir minna okkur á gildi mannréttinda

frettinPistlarLeave a Comment

Páll Vilhjálmsson blaðamaður og kennari skrifar á bloggi sínu um bólusetningar, mannréttindi og sérvitringa.

,,Bólusetningar, almennt talað, eru í þágu lýðheilsu. Á hinn bóginn hljóta þær að vera valfrjálsar. Ekkert lýðræðislegt ríkisvald má skylda borgara að taka tiltekið lyf, og bóluefni er lyf, þótt það sé í þágu lýðheilsu.

Þar stendur hnífurinn í kúnni. Lýðheilsa andspænis einstaklingsfrelsi. Á mótsögninni er engin lausn, a.m.k. engin góð. Við verðum að lifa með mótsögninni og það í sæmilegri sátt.

Tilfallandi höfundur er tvíbólusettur og örvaður. Hann mælir með bólusetningu fullorðinna. En það má ekki ganga á mannréttindi þeirra sem vilja ekki bóluefnið í sinn skrokk - af hvaða ástæðum sem það annars er.

Einstaklingsfrelsið kemur stundum út sem sérviska fárra andspænis fjöldanum. En það eru einmitt sérvitringarnir sem minna okkur á gildi mannréttinda.

Skildu eftir skilaboð