Brotist inn hjá Mannlífi og tölvugögnum eytt

frettinInnlendar1 Comment

Samkvæmt heimildum Fréttarinnar var brotist inn hjá Mannlífi í nótt og tölvum og gögnum eytt stolið.

Heimildarmaður tjáði blaðamanni einnig að Mannlíf hugðist fjalla um viðskiptamann sem væri umsvifamikill í atvinnulífinu hér á landi og telja menn að þetta tvennt gæti tengst. Innbrotið virðist hafa verið unnið af fagmönnum sem meðal annars þekktu ritstjórnarkerfið sem var ,,lagt í rúst og gögnum eytt.

Ekki hefur náðst í Reyni Traustason ritstjóra Mannlífs en annar starfsmaður miðilsins staðfesti innbrotið en vildi ekki tjá sig frekar um málið og benti á Reyni.

Vefsíða miðilsins liggur niðri eins og er.


Image

One Comment on “Brotist inn hjá Mannlífi og tölvugögnum eytt”

  1. Mér skilst að miðillinn hafi verið bólusettur, sem skýrir innbrotið.

Skildu eftir skilaboð