Bólu­efnapassar – feil­spor á loka­metrunum?

frettinInnlendar2 Comments

Erling Óskar Kristjánsson verkfræðingur skrifar.

Umræða um bóluefnapassa hefur dúkkað upp í samfélaginu nokkrum sinnum í faraldrinum. Í lok nóvember sl. birti ég grein ásamt prófessor í læknisfræði, þar sem við útskýrðum að ekki væru vísindaleg rök fyrir slíkri mismunun, heldur byggi hugmyndin öllu heldur á skilningsleysi. Undanfarið hefur enn og aftur borið á þessari umræðu. Talsmenn þessarar stefnu bera oft fyrir sig þau rök að önnur lönd hafi farið þessa leið, líkt og það réttlæti sömu aðgerð hérlendis. Tímasetning umræðunnar er hins vegar sérstaklega undarleg að sinni, því meðan sumir Íslendingar vilja taka upp bóluefnapassa vilja önnur lönd hætta notkun þeirra.

Cyrille Cohen er prófessor í ónæmisfræði og deildarstjóri við Bar Ilan háskóla í Ísrael, og meðlimur í ráðgjafarnefnd ríkisstjórnarinnar um bóluefni við kórónuveirunni. Í nýlegu viðtali útskýrði hann að þar sem bóluefnin veittu orðið litla vörn gegn smiti væri eini tilgangur bóluefnapassa að þrýsta á fólk að láta bólusetja sig. Hann vill hins vegar meina að bóluefnapassar eigi ekki lengur við í þessari Omicron bylgju og sér ekki tilgang í því að halda notkun þeirra áfram. Ástæðurnar eru meðal annars þær að bóluefnin veita minni vörn gegn Omicron en fyrri afbrigðum. Omicron veldur síður alvarlegum veikindum en fyrri afbrigði. Þá er það svo smitandi að útskúfun lítils hóps úr samfélaginu mun hafa lítil áhrif á útbreiðslu veirunnar á þessari stundu. Að sama skapi telur Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, forsendur til að mismuna óbolusettum ekki vera jafn sterkar og áður.

Fjármálaráðherra Ísraels, Avigdor Lieberman, vinnur að því með öðrum að leggja niður bóluefnapassa. Hann segir að margir sérfræðingar séu sammála um að það séu hvorki læknisfræðileg né faraldsfræðileg rök fyrir passanum. Hann segir að passinn skaði atvinnulífið, daglega starfsemi og auk þess ýti hann undir ofsahræðslu meðal almennings. Á sama tíma virðast sumir Íslendingar halda að þessir passar muni hafa jákvæð áhrif á efnahagslífið. Hvernig væri að horfa á reynslu annarra ríkja? Þeir sem vilja bjarga efnahaginum ættu kannski frekar að líta til Flórída, Texas og fleiri ríkja vestanhafs þar sem fólk er ekki heltekið af ótta, og ferðaþjónusta og efnahagslíf blómstra fyrir vikið.

Írar hafa hætt flestöllum sóttvarnaraðgerðum, þ.m.t. framvísun bóluefnapassa á viðburðum innanhúss. Fjöldi annarra landa stefna að því að aflétta öllu. Þann 26. janúar ætla Bretar að fara sömu leið, og leggja þar með niður bóluefnapassann sem þeir tóku í notkun fyrir rúmum mánuði. Kostnaður og fyrirhöfn við að taka svona passa í notkun er gríðarlegur en þetta entist ekki lengi hjá Bretunum.

Þjóðir hafa tekið upp bóluefnapassa í þeim tilgangi að þrýsta á fólk til að láta bólusetja sig. Þeir hafa verið teknir í notkun þegar stór hluti almennings var enn óbólusettur. Þá voru skæðari afbrigði í umferð, auk þess sem bóluefnin veittu meiri vörn gegn þeim afbrigðum en Omicron. Þótt erlendum stjórnvöldum hafi þótt ákvörðunin rökrétt á sínum tíma, þýðir það ekki að hún sé rétt fyrir Ísland í dag.

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin, WHO, telur að upp undir helmingur Evrópubúa muni smitast af Omicron á næstu vikum. Það mun stuðla vel að hjarðónæmi í samfélaginu. Hérlendis eru rúmlega 90% fullorðinna bólusettir. Hinir hafa nú þegar smitast eða munu gera það á næstu vikum, og verða því vel varðir gegn endursmiti. Jafnvel þótt bóluefnapassar gerðu gagn, tæki því ekki að taka þá upp á þessari stundu. Faraldurinn gæti vel verið á undanhaldi. Reynum að forðast feilspor á lokametrunum.

Höfundur er með BS í verkfræði. Greinin einnig birt á Vísi 24.01.2022.

2 Comments on “Bólu­efnapassar – feil­spor á loka­metrunum?”

  1. Eigum við ekki að nota tækifærið og skrá niður þá sem eru samþykkir hugmyndinni um bólupassann?
    Síðan skal svipta þá kosningarétti og leyfi til að tjá sig opinberlega þar sem þeir eru hættulegir lýðræði og athafnafrelsi og hallir undir upptöku harðstjórnar og einræði múgsefjunar?

    Ef þú segir nei að þá stóðst þú prófið og ert í grunninn ekki hlynnt/ur hugmyndinni um bólupassann.

  2. Loksins held ég að covid umræðan verður pásuð í bili og vírusinn hverfur á braut eins og hann hafi aldrei verið til. Glóbalistar tjalda öllu núna í áróðrinum á Rússa og hættan á kjarnorkustyrjöld aldrei verið eins mikil.

    Íslensku (keyptu) áróður fjölmiðlanir með RÚV í broddi fylkingar munu setja covid grýluna niður í skúffu og taka upp Pútín grýluna.

Skildu eftir skilaboð