Candace Owens: Það er eitthvað mjög óeðlilegt í gangi – ekki bara í Bandaríkjunum

frettinErlentLeave a Comment

Í viðtali við Tucker Carlson á "Carlson Tonight" á Fox stöðinni í Bandaríkjunum á föstudag varaði vinsæli þáttastjórnandinn og stjórnmálaskýrandinn Candace Owens við því að ríkisstjórn Bandaríkjanna væri viljandi að skapa vandamál til að neyða borgarana til að ,,leita til ríkisstjórnarinnar til að fá lausnir.“ Hún fullyrti að stjórnvöld væru að framfylgja stefnu sem búi til nútíma ,,þrælakerfi.“

Owens heldur því fram að vandamálið sé alþjóðlegt. Hún vísaði til þess að leiðtogi Global Economic Forum, Charles Schwab, hafi gefið út bók árið 2020 þar sem hann benti á það að heimsfaraldurinn gæfi tækifæri til að umbreyta heiminum ... og afnema það að fólk geti átt eignir.

Hún varaði Bandaríkjamenn einnig við því að eitthvað óheiðarlegt væri í gangi meðal ríkisstjórna um allan heim í samstilltri viðleitni þeirra til að skapa einhvers konar ,,tæknikerfisveldi“ og hún hvatti almenning til að leyfa þeim ekki að afvegleiða sig um það hvert væri markmiðið.

Owens fullyrði m.a. að greiðslustöðvun sem húseigendum væri boðið upp á í Bandaríkjunum væri hannað til að refsa húseigendum og skaða hagkerfið. Húseigendur mun ekki getað borgað af húsnæðislánum sínum og þeir munu fara í vanskil og þá mun einhver koma og hreinsa upp allar þessar eignir til sín sem einu sinni voru í eigu duglegs millistéttarfólks.

Hún hélt áfram og sagði: ,,Líttu á fátækari svæðin nálægt miðborgunum“ hélt Owens áfram. "Af hverju vill [ríkisstjórn] þessi vandamál? Hvers vegna fjármagna þeir þessi vandamál? Af hverju vilja þeir dópista? Af hverju fjármagna þeir áætlanir sem leyfa fólki að vera á endalausum lyfjum? Við erum að horfa á ríkisstjórn sem vill fólk háð kerfinu.

Owens bætti við: ,,Það sem við sjáum er nútíma form þrælahalds. Þetta er þrælahald árið 2022... [Ríkisstjórnin] er að auka þessi vandamál undir því yfirskini að hún sé að taka á COVID-19 vandamáli.

Owens ræddi einnig viðkvæmt mál og sagði: ,,Ég segi alltaf að Black America hafi verið tilraunin í þessu. Þeir útdeildu trilljónum dollara í velferðarþjónustu og svartir Bandaríkjamenn eru í rauninni fátækari í dag en þeir voru áður en velferðarkerfið fór að koma á eftir þeim og sundra fjölskyldum þeirra. Þeir eru núna að koma á þessu sama kerfi fyrir alla. Þeir vilja að hver einasti Bandaríkjamaður sé háður stjórnvöldum varðandi mat, fjölskyldu og lyf. Það sem stjórnvöld vilja er þrælahald.“

Hún sagði að lokum: ,,Og ég get ekki lagt meiri áherslu á þetta, fólk: Kynnið ykkur málið. Þið verðið að kynna ykkur þetta. Þeir vilja alþjóðlegt ,,tæknikerfisríki.“ Þið eruð ekki samsæriskenningasmiðir, ekki leyfa þeim að villa um fyrir þér. Eitthvað mjög óhugnanlegt er í gangi. Ekki bara í Bandaríkjunum... heldur um allan heim.

Viðtalið við Candace Owens á Fox má sjá hér

Skildu eftir skilaboð