Dr. Robert Malone með mikilvæg varnarorð til foreldra í magnaðri ræðu við þinghúsið

frettinErlentLeave a Comment

Á sunnudaginn komu þúsundir saman við þinghúsið í Washington DC til að mótmæla skyldubólu-setningum. Einn ræðumannanna var Dr.Robert Malone, uppfinningamaður mRNA tækninnar, sem notast er við í flestum Covid bóluefnum. Læknar frá samtökunum America´s Frontline Doctors voru líka við þinghúsið.

Hluti úr ræðu Dr. Malone sem sjá má í heild sinni hér neðar, var svohljóðandi:

„Leyfið mér að tala um börnin og þá grundvallarskyldu okkar til að vernda þau. Í það minnsta ber okkur skylda til að hlúa að þeim og vernda. Það er okkar helsta hlutverk, það er ykkar hlutverk, það er mitt hlutverk, það er ekki hlutverk barnanna að vernda okkur.“

„Síðustu tvö ár hefur samfélögum okkar og heilbrigðiskerfum mistekist að vernda börnin. Margt af því sem opinbera heilbrigðiskerfið hefur krafist að við gerum við börnin okkar hefur beinlínis skaðað þau.“

Sjálfsskaði, sjálfsvíg og fíkniefnaneysla barna hefur færst í aukana um allan heim. Kvíði, einelti, hótanir, þvinganir eru orðin ,,nýja normið.“ Greindarvísitala hjá mjög ungum börnum hefur lækkað. Auðvelt er að mæla þroskaskerðingu í æsku. Börn eru að veikjast og deyja af völdum bóluefnanna sem í þau er sprautað til að verja þá öldruðu.“

„Ég sem foreldri, þið sem eruð foreldrar eða ætlið að verða foreldrar...að lokum er það ykkar ábyrgð að vernda börnin. Ef börnin verða fyrir skaða af þessum erfðaefnum, er það ykkar að  að sjá um þau. Það eru þið sem munið bera byrðarnar það sem eftir er af ykkar lífi og þeirra. Að meðaltali munu á milli eitt af hverjum 2000 og eitt af hverjum 3000 börnum sem fá bóluefnin leggjast inn á sjúkrahús til skamms tíma vegna skaða af völdum bóluefnisins. Aðeins með tímanum munum við vita hvert langtímatjónið getur orðið fyrir þessi börn“

„Bóluefnin vernda ekki börnin okkar frá því að smitast af Omicron. Þau koma ekki í veg fyrir að sýkt börn smiti aðra. Og lyfjafyrirtækin og stjórnvöld er næstum fullkomlega varin gegn tjóni sem þessi efni geta valdið börnunum.“

„Ef barnið ykkar skaðast af efnunum, verðið þið skilin eftir ein með sorg ykkar og byrði. Þessi erfðaefni geta skaðað börnin. Þau geta skaðað heilann, hjartað, ónæmiskerfið og getu þeirra til að eignast börn í framtíðinni. Margar af þessum skemmdum er ekki hægt að bæta, svo ég bið ykkur, vinsamlegast upplýsið ykkur um hugsanlega áhættu. Börnin ykkar geta skaðast af þessum tilraunaefnum.“

Hér er Dr. Robert Malone, uppfinningamaður mRNA tækninnar, sem notuð er í flestum Covid bóluefnunum, og ræða hans:

Heimild


Skildu eftir skilaboð