Guðni forseti biðst afsökunar á sóttvarnarbrotum – þekkti ekki reglurnar

frettinInnlendar6 Comments

Guðni Th. Jó­hann­es­son, for­seti Íslands, sendi rétt í þessu frá sér tilkynningu varðandi brot á sóttvarnarreglum á Bessastöðum og seg­ir að mis­brest­ur hafi orðið á að regl­um um grímu­skyldu hafi ekki verið fylgt við af­hend­ingu Íslensku bók­mennta­verðlaun­anna í síðustu viku.

Íslensku bók­mennta­verðlaun­in voru af­hent af for­seta Íslands á Bessa­stöðum síðastliðinn þriðju­dag. Fjöldi gesta í saln­um var vel yfir því sem sam­komutak­mark­an­ir leyfðu, sem þá voru 10 manns. Þá bar eng­inn þeirra grímu fyr­ir vit­um sér eins og reglur kveða á um þegar ekki er hægt að halda fjarlægð. Tveggja metra reglan var í gildi í síðustu viku.

Forsetinn minnist ekki á brot um fjöldatakmarkanir í yfirlýsingu sinni, en gildandi reglur gerðu ráð fyrir hámark 10 manns í sama rými. Gera má ráð fyrir að um helmingi fleiri hafi verið við athöfnina af myndum að dæma sem birtar hafa verið frá atburðinum.

Mikillar óánægju hefur gætt vegna brota embættisins, því eins og vitað er hefur fjöldi manns til að mynda ekki komist í jarðarfarir ættingja vegna umræddra samkomutakmarkanna.

Forsetinn segir að um misskilning væri að ræða og má gera ráð fyrir að hann hafi ekki kynnt sér reglurnar og ekki heldur gestirnir eða embætti hans.

Yfirlýsingu forsetans má sjá hér að neðan:

„Því miður féll sá skuggi á viðburðinn að mis­brest­ur varð á því að regl­um um grímu­skyldu væri fylgt. Eft­ir að gest­ir höfðu fengið sér sæti í saln­um var grímu­notk­un­ar ekki kraf­ist, en það sam­ræmd­ist ekki gild­andi sótt­varn­ar­regl­um. Ég ber ábyrgð á þeim mis­skiln­ingi. Sömu­leiðis var það mis­ráðið af mér að fall­ast á und­anþágu til að halda slík­an viðburð á Bessa­stöðum,“ skrif­ar Guðni. 

„Frá upp­hafi far­ald­urs­ins fyr­ir um tveim­ur árum höf­um við hér ein­sett okk­ur að fylgja öll­um til­mæl­um í hví­vetna, fellt niður viðburði eða hagað þeim með breytt­um hætti, og aldrei leitað und­anþága í þeim efn­um. Sá eða sú, sem gegn­ir embætti for­seta Íslands, á að ganga á und­an með góðu for­dæmi. Nú fór svo að það sem helst hann var­ast vann, varð að koma yfir hann, eins og sálma­skáldið orti, eða sjálfs­mark á lokakafl­an­um svo að notuð sé sam­lík­ing úr heimi boltaíþrótta. Ég biðst inni­lega af­sök­un­ar á þess­um leiðu mis­tök­um.“

6 Comments on “Guðni forseti biðst afsökunar á sóttvarnarbrotum – þekkti ekki reglurnar”

  1. Hræsnin er orðin vandræðaleg, býst við að gengið verði jafnhart að þeim eins og sjálfstæðismönnum, verður ekki að vera jafnrétti og allt það? Nei það er bara á yfirborðinu svo er allt holt að innan.

  2. don’t apologize, just resign and go, but if an apology is enough, then all murderers, thieves, drug dealers should be released from prison, and we should all stop paying taxes, because I am convinced that no one knows the rules. What a miserable excuse from a miserable man.

  3. Ættum við ekki öll að fylgja þessu fordæmi? Ég held það, köstum grímunum enda er þær heilsuspillandi og auka á óttann í samfélaginu.

  4. Daginn sem ríkisstjórnin tilkynnti afléttingar (og herta grímuskyldu) voru fjöldatakmarkanir líka brotnar. Of margir á fundinum, blaðamenn hefðu vel getað verið á fjarfundi eins og á upplýsingafundum með þríeykinu. En stjórnmálamenn vildu baða sig í sviðsljósinu og þurfu því fjölmiðla. Á fólk að taka þessum kjánareglum alvarlega?

  5. Misbrestur, misráðið og miskilningur, er Georg Bjarnfreðarson mættur?
    Staðreyndin er sú að margir í valdastöðum telja sig vera yfir reglur hafna, er ekki að segja að Guðni sé það, hann hefur a.m.a.k. beðist þjóðina afsökunar.
    svo er þetta alger brandari með 1 og 2 metra regluna, staðreyndin er sú að margir vilja helst vera í hælunum á hver öðrum andandi ofan í hálsmálið á hvor öðrum. Það á bara að vera 2m. regla alltaf á meðan heimsfaraldur geisar.

Skildu eftir skilaboð