Edda Falak leitar eftir upplýsingum um þjóðþekktan mann

frettinInnlendarLeave a Comment

Edda Falak þáttastjórnandi hlaðvarpsins Eiginkonur leitar nú að upplýsingum sem tengjast þjóðþekktum manni. Hún auglýsir eftir upplýsingum um manninn í opnum hópi á Facebook.

„Það leitaði til mín kona sem varð fyrir vændi fyrir nokkrum árum. Gerandi hennar er mjög þekktur maður í samfélaginu og virkur í umræðunni um covid. Hann hefur einnig talað opinberlega um alvarleika fíknivanda,“ segir Edda.

Hún er að leita að aðilum sem þekkja manninn og hafi upplýsingar um hann.

„Tek það fram að ég lofa auðvitað 100% trúnaði og ég er ekki að fara opinbera neitt eða biðja þig um að koma í viðtal eða neitt slíkt,“ segir hún. Vonar hún að þær upplýsingar geti styrkt frásögn konunnar.

Skildu eftir skilaboð