Hinir látnu sem voru í flugvélinni eru fundnir og komnir í land

frettinInnlendarLeave a Comment

Lögreglan á Suðurlandi tilkynnti rétt í þessu að búið væri að finna lík allra þeirra sem voru um borð í TF ABB og ná þeim í land.

,,Nú er matarhlé og síðan verða aðgerðir morgundagsins skipulagðar," segir á facebook síðu lögreglunar og að nánari upplýsingar verði veittar fyrramálið.

Lík mannanna fjögurra verða flutt til Reykjavíkur þar sem ættingjar þeirra bera á þau kennsl. Að því loknu verður krufning, segir á fréttasíðu RÚV. 

Skildu eftir skilaboð