Skotárás í miðbænum í nótt – einn karlmaður er særður

frettinInnlendarLeave a Comment

Karlmaður var skotinn með skotvopni í Ingólfsstræti laust fyrir klukkan eitt í nótt. Verulegur viðbúnaður lögreglu og sérsveitar var á svæðinu þegar atvikið átti sér stað.

Á myndböndum sem nú ganga um netið má sjá þungvopnaða sérsveitarmenn við aðgerðir í bílastæðahúsi við Bergstaðastræti og Ingólfsstræti.

Sjónarvottur segist hafa vaknað við skothvelli og litið út um gluggann sem snýr í átt að bílastæðahúsinu við Bergstaðastræti, og séð þar karlmann munda vélbyssu.

„Í fyrstu hélt ég að þetta væru flugeldar. Fólk hefur verið að skjóta þeim upp hérna í hverfinu. En hvellirnir virtust vera svolítið taktfastir, fjögur eða fimm skot. Þá leit ég út um gluggann og sá mann með vélbyssu á þaki bílastæðahússins,“ segir sjónarvotturinn í samtali við Fréttablaðið.

„Ég alla vega held að þetta hafi verið vélbyssa. Þetta var stór byssa sem hann hélt á með báðum höndum,“ áréttar hann. Aðspurður segist hann eðlilega hafa orðið hræddur.

„Þetta var óhugnanlegt. Ég var eðlilega hræddur enda er maður ekki vanur að sjá mann með vélbyssu.“

Þrír karlmenn eru í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn sem varð fyrir árásinni tilkynnti hana sjálfur til lögreglu og var hann fluttur á slysadeild, gekkst þar undir aðgerð og er ekki í lífshættu. Þetta segir í tilkynningu frá lögreglunni.

Mikill viðbúnaður var vegna málsins en mennirnir þrír voru handteknir fljótlega eftir að rannsóknin hófst. Lagt hefur verið hald á skotvopn og bifreið í þágu rannsóknarinnar. Við aðgerðirnar í nótt naut lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar sérsveitar.

Visir birti myndband af afgerðum lögreglu sem má sjá hér neðar.


Skildu eftir skilaboð