Klaus Schwab segist stjórna Trudeau og fleiri leiðtogum í gegnum WEF

frettinErlent3 Comments

Glóbalistinn Klaus Schwab, stofnandi og framkvæmdastjóri World Economic Forum (WEF), hefur stært sig af því opinberlega að hann hafi náð að þvinga hugmyndafræði sinni innan ríkja með efnahagsaðgerðum og með því að sniðganga hvers kyns kosningarétt fólksins. Þetta segir hann í ræðu sinni við Harvard háskóla.

Schwab hefur verið lykilmaðurinn á bak við mótun Evrópusambandsins. Þýska þjóðin fékk t.d. aldrei að kjósa um aðild að evrunni. Hann viðurkenndi einnig að hann hagaði sér eins og einræðisherra, því ef hann leyfði fólkinu að kjósa vissi hann að hann myndi tapa.

Yfirmenn ESB, IMF og ECB eru allir eða hafa verið stjórnarmenn í WEF og hann hefur sitt fólk til að stjórna Evrópu algjörlega. Ef litið er á löndin sem hann hefur ráðið yfir þá má sjá þar verstu kúgun síðan á tímum Hitler og Mussolini. Allt hefur þetta verið undir því yfirskini að hlúa að velferð fólksins vegna COVID sem er ekki einu sinni ógn lengur frekar en flensan.

Schwab hefur nú náð að koma hugmyndafræði sinni inn í Harvard háskóla og er kominn með dagskrá til að hefja kennslu þar um globalismann og sína marxísku hugmyndafræði. Schwab hefur ekki aðeins áhrif á ríkisstjórnir heims, heldur líka háskólana, í þeim tilgangi að innræta næstu kynslóð af stefnu sinni. Hann hefur einnig búið til Global Shapersfverkefnið til að endurmóta heiminn eftir sinni marxísku sýn.

Kanadamenn verða að opna augun segir í heimildinni. Trudeau lætur nú meira að segja lögregluna handtaka fólk sem kemur með eldsneyti til vörubílstjóranna. Þetta er allsherjar stríð Schwab gegn framtíð heimsins, fjölskyldna okkar og barna.

Fræðimenn hafa verið stuðningsmenn kommúnismans vegna þess að þeir hafa aldrei lifað undir slíkum kerfum og tala alltaf um efnahagslegt jafnrétti frekar en jöfn réttindi. Það er ekki hægt að hafa frelsi og efnahagslegt jafnrétti samtímis. Rússland og Kína reyndu en það mistókst.

Schwab segist stoltur af sínum ungu leiðtogum globalismans eins og Justin Trudeau, Macron forseta Frakklands og Fernández forseta Argentínu, en það séu núna leiðtogar globalista í 450 borgum um allan heim. Pútín hefur hafnað áætlun Schwabs en Evrópa, Kanada, Ástralía og Nýja Sjáland hafa tekið hana upp hjá sér.

Þess má geta að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er einnig meðlimur í World Economic Forum.
Slagorð WEF er Build back better. Klaus Scwab er einnig höfundar bókarinnar COVID-19:  The Great Reset sem kom út í júlí 2020.

Heimild

3 Comments on “Klaus Schwab segist stjórna Trudeau og fleiri leiðtogum í gegnum WEF”

  1. Er það ekki upplagt að blaðamenn taki viðtal við forsætisráðherra okkar og fái hennar sýn á hugmyndir um globalismann og þá marxísku hugmyndafræði sem Klaus Schwab hefur barist fyrir, sem stofnanda og framkvæmdastjóra World Economic Forum

  2. Nú deili ég orði frá Guði í gegnum hans spámenn: The devil had a plan for build back better, the plan was to cripple all the oil industry world wide in order to create a demand for new renewable energy resources. The Lord has stripped this plan from the enemy and has given it to Donald Trump and America.

    Katrín er í slagtogi við glæpamenn af verstu sort og mun uppskera eins og hún hefur sáð.

  3. Efahagslegt jafnrétti komúnismans er fókusinn, en hann er bara fyrir almúgann. Elítan á svo að lifa í lúxus á kostnað almúgans; rétt eins og svínin sem náðu völdum í Dýrabæ Orwells.

Skildu eftir skilaboð