Öllum lögfræðingum Rauða krossins sagt upp

frettinInnlendarLeave a Comment

Samn­ing­ur dóms­málaráðuneyt­is­ins við Rauða kross­inn um rétt­araðstoð og tals­mannaþjón­ustu fyr­ir hælisleitendur hef­ur ekki verið fram­lengd­ur. Samn­ing­ur­inn renn­ur út 30. apríl næstkomandi, en öll­um lög­fræðing­um Rauða kross­ins hef­ur verið sagt upp störf­um.

Þetta kem­ur fram á vef Vís­is.

Óvíst er hvert fram­haldið verður í mála­flokkn­um, en Rauði kross­inn hyggst taka þátt í útboði á þjón­ust­unni verði að því.

Vís­ir hef­ur eft­ir Jóni Gunn­ars­syni dóms­málaráðherra að ekki hafi verið tek­in ákvörðun um hvort að farið verði í útboð yfir höfuð. Þjón­ust­an sé ekki útboðsskyld, en breyt­ing­ar í mála­flokkn­um séu á döf­inni og því hafi verið ákveðið að fram­lengja ekki samn­ing­inn við Rauða kross­inn.

Skildu eftir skilaboð