Einkenni heilablóðfalls geta verið margskonar

frettinPistlarLeave a Comment

Heilablóðfall er stundum nefnt heilaáfall, slag, eða heilablæðing. Við erum ekki öll eins og einkenni geta verið mismunandi og skiptir þá mestu máli hvers eðlis áfallið er og hvar það á upptök sín. Hér eru einfaldar leiðbeiningar af vefsíðunni heilaheill.is þar sem farið er yfir byrjunareinkenni sjúkdómsins.

Engir tveir með sömu einkenni

Engir tveir einstaklingar fá sömu einkenni jafnvel þótt ástæður fyrir heilablóðfallinu geti verið þær sömu. Staðsetning skemmdarinnar í heilanum er lykilatriði og sömuleiðis hve stór hún er. Aldur og fyrra heilsufar hafa einnig áhrif. Heilinn er stjórnstöð fyrir alla starfsemi líkamans. Staðbundin skemmd á ákveðnum svæðum veldur starfstruflun á ákveðnu líkamssvæði eða á sérhæfðri líkamsstarfsemi. Hægra hvel heilans stjórnar vinstri hluta líkamans og öfugt. Auk þess að stjórna hægri hlið líkamans, hefur vinstra heilahvel að geyma málstöðvar heilans. Því getur skemmd í vinstra heilahveli valdið bæði lömun í hægri hlið líkamans og tjáskiptavandamálum. Ýmis síðbúin vandamál geta komið eftir bráðastigið, svo sem þunglyndi og flogaköst. Afleiðingar og einkenni geta því verið margvísleg.

Byrjunareinkenni og afleiðingar heilablóðfalls

Dofi, kraftminnkun eða lömun í annarri hlið líkamans. Einkennin geta verið bundin við handlegg, hönd, fótlegg eða náð yfir alla hliðina. Taltruflanir svo sem óskýrmæli, erfiðleikar við að finna rétt orð eða mynda setningar. Stundum skerðist skilningur á töluðu máli. Erfiðleikar við að lesa og skrifa geta einnig komið fram

  • Erfiðleikar við að borða og kyngja
  • Skert sjón í helmingi eða hluta sjónsviðs
  • Skortur á einbeitingu og minnistruflanir
  • Skyntruflanir, svo sem skert tíma- og afstöðuskyn
  • Grátgirni, trufluð tilfinningastjórnun og persónuleikabreytingar
  • Verkstol, þ.e. skert geta til að framkvæma ýmsa hluti
  • Gaumstol, þ.e. menn vilja gleyma þeim líkamshelmingi sem er lamaður og nota hann ekki, jafnvel þótt þeir geti hreyft hann
  • Truflun á þvagstjórn
  • Byrjunareinkenni geta auk þess verið skyndilegur slæmur höfuðverkur, ógleði, uppköst eða skert meðvitund auk framangreindra atriða.

Mikilvægt er að leita aðstoðar sem fyrst og hefja læknismeðferð. 

Hjartalif.is

Skildu eftir skilaboð