Íþróttahöllin í Hveragerði sprakk í nótt

frettinInnlendar1 Comment

Íþróttahöllin í Hveragerði skemmdist í nótt í óveðrinu með þeim afleiðingum að hún er líklega ónýt. Mikið óveður hefur verið á landinu frá því í gærkvöldi.

Hamar í Hveragerði heldur úti æfingum þar og ljóst er að engar æfingar fara fram þar á næstu dögum.

„Hún sprakk, ég var að fá þessar fréttir fyrir tíu mínútum. Þá voru starfsmenn fyrir utan höllina, ég er að bíða eftir að heyra í bæjarstjórunum. Þetta er mikið tjón, við fyrstu sýn er húsið sé ónýtt," sagði Hermann Kristinn Hreinsson framkvæmdarstjórii knattspyrnudeildar við Fréttablaðið.

Húsið var byggt árið 2012 og er fjölnota íþróttahöll sem hýsir gervigrasvöll, níu holu púttvöll og fjölnota íþróttagólf í fullri stærð. Stærð íþróttahallinnar er um 5000 m². Íþróttahöllin er upphituð úr tvöföldum dúk sem er borinn uppi af innri loftþrýstingi og loftþrýstingi á milli ytra og innra lags í útveggjum og þaki. 

Samkvæmt upplýsingum frá íbúum þá er dúkurinn enn á staðnum en allt sem getur fokið eins og fimleikadýnur, boltar og annað er farið útí veður og vind.

One Comment on “Íþróttahöllin í Hveragerði sprakk í nótt”

  1. Stóð ekki í 110 ár, 300m. vel varið, en þetta er allt í góðu tryggingarnar borga og svo er bara að byggja aftur samskonar rusl og bíða eftir næta óveðri, snillingar hér á ferð.

Skildu eftir skilaboð