Setning ráðuneytisstjóra ekki í samræmi við lög

frettinInnlendarLeave a Comment

Skúli Magnússon umboðsmaður Alþing­is, seg­ir ákvörðun Áslaug­ar Örnu Sig­ur­björns­dótt­ur, ráðherra há­skóla-, iðnaðar- og ný­sköp­un­ar, um tíma­bundna setn­ingu ráðuneyt­is­stjóra til þriggja mánaða án und­an­geng­inn­ar aug­lýs­ing­ar ekki vera í sam­ræmi við lög. Þetta kem­ur fram í áliti umboðsmanns sem birt var á vefsíðu embætt­is­ins í dag.

Áslaug skipaði Ásdísi Höllu Bragadóttur í embættið tímabundið, og er það álit umboðsmanns að aðrar leiðir hefðu verið fær­ar til að ekki væri gengið gegn ákvæðum laga um rétt­indi og skyldu starfs­manna rík­is­ins.

Skúli Magnússon umboðsmaður Alþingis

Á vef umboðsmanns segir:

„Þegar fyrirætlun stjórnvalda um að koma hinu nýja ráðuneyti á fót hafi legið fyrir hefði ráðherra borið að grípa til viðeigandi ráðstafana til að tryggja starfsemi þess við stofnun. Ef ekki hefði verið nægur tími til að auglýsa embættið og ljúka skipunarferli áður en ráðuneytið tæki formlega til starfa hefðu verið færar leiðir að lögum til bráðabirgðaráðstafana. Ólögfest sjónarmið um skyldur stjórnvalda til tafarlausra viðbragða við þessar aðstæður gætu ekki réttlætt ákvörðun ráðherra um tímabundna setningu ráðuneytisstjóra án auglýsingar með vísan til þeirra sjónarmiða sem ráðuneytið byggði á.

Umboðsmaður áréttar í álitinu mikilvægi þess að stjórnvöld fylgi þeim lagareglum sem gilda um veitingu opinberra starfa og embætta og virði þau markmið sem þeim er ætlað að þjóna. Það eigi ekki síst við um ráðuneyti sem fari með æðstu stjórn framkvæmdavaldsins. Hann tekur fram að ekki séu líkur á að dómstólar myndu meta setningu ráðuneytisstjórans ógilda og að embættið hafi nú verið auglýst en mælist engu að síður til þess að ráðuneytið taki framvegis mið af sjónarmiðunum í álitinu."

Skildu eftir skilaboð