52 ára þingkona Ástralíu bráðkvödd – hjartaáfall talin dánarorsök

frettinErlentLeave a Comment

Öldungadeildarþingmaður verkamannaflokksins í Viktoríu í Ástralíu, Kimberley Kitching, lést skyndilega í dag, fimmtudag, í Melbourne.

Kitching var 52 ára og talin hafa látist úr hjartaáfalli að því er ABC fréttastofan greinir frá.

Leiðtogi flokksins, Anthony Albanese, heiðraði þingmanninn Kitching og sagði að hennar yrði saknað af öllum.

„Flokksmenn er í áfalli í kvöld yfir þeim hörmulegu fréttum að vinur okkar og samstarfsmaður öldungadeildarþingmaðurinn Kimberley Kitching hafi látist skyndilega. Ég votta fjölskyldu hennar innilegar samúðar,“ sagði Albanese á Twitter.

Heimild.

Skildu eftir skilaboð