Forseti Frakklands að stæla Zelensky? – mætti órakaður í hettupeysu og gallabuxum

frettinErlentLeave a Comment

Ljósmyndir birtust af Emmanuel Macron Frakklandsforseta í Élysée-höllinni í dag, þar sem hann var klæddur gallabuxum og dökkri hettupeysu og órakaður í þokkabót. Forsetinn er vanalega glerfínn í tauinu; í dökkum þröngum jakkafötum með bindi, vel greiddur og nýrakaður.

Myndirnar af Macron sem ljósmyndari hans birti fengu almennt góðar viðtökur á samfélagsmiðlum, en aðrir hafa sakað Macron um markaðsbrellu til að reyna líkjast Zelensky leiðtoga Úkraínu.

Zelensky er orðinn þekktur fyrir að vera í venjulegum hettupeysum og stuttermabolum síðan innrásin í Úkraínu hófst. Hann hefur notið mikilla vinsælda fyrir sjálfsmyndbönd sín og almennilega framkomu.

Heimild.

Skildu eftir skilaboð