Stíga grunaðir blaðamenn til hliðar?

frettinPistlar1 Comment

Páll Vilhjálmsson skrifar:

Staðfest er að 4 blaðamenn RÚV, Stundarinnar og Kjarnans eru grunaðir um alvarlegan glæp, byrlun og gagnastuld. Ítarlega rökstuddur úrskurður landsréttar segir að blaðamenn séu ekki undanþegnir rannsókn á ,,ætluðum brotum þeirra gegn almennum hegningarlögum." Skýrt og skynsamlegt réttlæti.

Þegar fyrir liggur að 4 blaðamenn hið minnsta, líklega eru þar einnig Helgi og Rakel, eru með stöðu sakborninga vaknar þessi spurning: munu blaðamennirnir stíga til hlíðar?

Áfram gildir, vitanlega, að allir eru saklausir uns sekt er sönnuð. En nú er lögreglan með gögn í höndunum sem líklega leiða til sakfellingar, annars væri rannsóknin ekki komin á lokastig. Ætla blaðamenn, dagskrárhafar opinberrar umræðu, að láta eins og ekkert hafi í skorist?

Í Kjarnanum í gær, vel að merkja fyrir úrskurð landsréttar, er fréttaskýring þar sem fjallað er með velþóknun um að stjórnarmenn í fyrirtækjum víki ef út af bregður með trúverðugleika. Þar segir m.a. að meta skuli hvort ,,hvort orð­spor valdi van­hæfi." Lykilsetning er að það skuli ,,líta til þess hvort hann sé sak­aður um hátt­semi sem telst ekki refsi­verð en sé „ámæl­is­verð að almanna­á­lit­i“." Tvö stig, sem sagt. Þeir sem eru sakaðir um refsiverða háttsemi eiga tafarlaust að fjúka, en hinir að víkja, stíga til hliðar, sem sýna ámælisverða hegðun að almannaáliti.

Höfundur fréttar Kjarnans er Þórður Snær Júlíusson, sem er sakborningur í rannsókn lögreglu á byrlun og gagnastuldi. Hann er sakaður um refsiverða háttsemi, annars væri hann ekki sakborningur. Blaðamaðurinn og ritstjórinn Þórður Snær fær falleinkunn á eigin siðgæðisprófi.

Mun Þórður Snær stíga til hliðar á meðan lögregla fullrannsakar glæpinn? Mun Þóra starfa á RÚV eins og ekkert hafi í skorist? Verður ,,rannsóknablaðamaðurinn" Aðalsteinn á Stundinni í vinnu að afhjúpa spillingu, sjálfur grunaður um glæp?

Blaðamenn segjast gjarnan þjónar almennings. Þjónar sem eru sakborningar í glæparannsókn geta ekki verndað almannahag. Það sjá allir í hendi sér - nema kannski siðblindir blaðamenn.

One Comment on “Stíga grunaðir blaðamenn til hliðar?”

  1. „Staðfest er að 4 blaðamenn RÚV, Stundarinnar og Kjarnans eru grunaðir um alvarlegan glæp, byrlun og gagnastuld.“

    Er það svo? Er það virkilega „staðfest“ … ég hélt að ættingi Páls skipstjóra hefði játað á sig verknaðinn

    Eftir því sem ég kemst næst þá vill lögreglan ræða við blaðamenn útaf því að þeir notuðu innihald stolins síma, sem er ekki ólöglegt. Með öðrum orðum þá er það staðfest að blaðamennirnir umtöluðu eru EKKI grunaðir um byrlun og gagnastuld.

    Sem þýðir í stuttu máli að Palli bloggari er lygari. Sorrí en þegar menn segja vísvitandi ósatt, þá eru slíkir menn lygarar og ærulausir eymingjar.

    Allt þetta er samt gert til að slá ryki í augu almennings og beina sjónum okkar frá fjölmörgum glæpum Samherja, sem stendur að baki þessari PR herferð um símann stolna.

    Þetta er innlegg númer tvö um þetta efni á þessum miðli, ég er búinn að týna hinu innlegginu eða það hefur verið fjarlægt …

Skildu eftir skilaboð