Ferill Ingólfs lagður í rúst – kallaður ofbeldismaður, nauðgari og barnaníðingur

frettinInnlendarLeave a Comment

Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, öðru nafni Ingó veðurguð, skrifar aðsenda grein á Vísi í morgun sem ber yfirskriftina „Sekur á samfélagsmiðlum“. Í greininni segir að undanfarna mánuði hafi hann verið borinn þungum sökum sem eigi sér ekki stoð í raunveruleikanum og hefur hann setið undir ásökunum og ósannindum af ýmsu tagi.

„Ég hef til að mynda verið kallaður ofbeldismaður, nauðgari og barnaníðingur þó það gæti ekki verið fjær sannleikanum. Það er sárt að vera borinn slíkum sökum og geta í raun ekki varist þeim þar sem sannleikurinn virðist engu máli skipta. Þar að auki hefur verið ráðist af mikilli hörku á fyrirtæki sem ég starfa fyrir, X-Mist, og flesta þá sem hafa bókað mig til að syngja við sína viðburði. Skaðinn sem mér hefur verið unninn er óafturkræfur en ég get ekki lengur setið hjá og horft á annað saklaust fólk þjást fyrir þessa aðför að mér,“ skrifar Ingólfur.

Lét af störfum hjá X-mist

Hann segist því hafa ákveðið að láta af störfum fyrir X-mist. „Fyrirtækið var byggt upp af heilindum og hugsjón aðila sem t.d. sáu það sem öflugt verkfæri í baráttunni gegn Covid 19 ásamt því að varan hefur hjálpað fólki við að leysa margvísleg vandamál. Ég óska fólkinu sem starfar fyrir fyrirtækið góðs gengis án þess utanaðkomandi áreitis sem þau hafa orðið fyrir vegna þess eins að vera kollegar mínir.“

Ingólfur segist svo sannarlega vera breyskur maður og hann hafi gert sín mistök á löngum ferli. Þá hafi hann eflaust sýnt af sér dónaskap og ekki komið nægjanlega vel fram við alla en ofbeldismaður og þaðan af verra sé hann ekki. Þess vegna finnist honum mikilvægt að stíga fram og segja alla söguna.

Áróðursherferð - kallað var eftir sögum

„Mál mitt byrjar þannig að ég fæ símtal frá blaðamanni Mannlífs og er ég spurður hvort ég vilji láta hafa eitthvað eftir mér varðandi ummæli aðila sem að ég átti að hafa nauðgað fyrir 15 árum. Stuttu áður hafði góð vinkona mín sagt mér að ,,ég væri næstur og það væri verið að skipuleggja að taka mig fyrir næst‘‘. Ég kem eðlilega af fjöllum enda gæti ég ekki gert svo svívirðilegan hlut að nauðga þó byssu væri miðað að höfðinu á mér. Við nánari eftirgrennslan kemur í ljós að á ferðinni er kona sem ég fór á nokkur stefnumót með fyrir 15 árum síðan. Stuttu áður hafði hún sagt að erfitt væri að setja sig í spor einhvers sem hefði verið nauðgað þar sem hún hefði ekki lent í slíku.“

Ingólfur segir að í kjölfarið hafi farið af stað eitthvað sem hann kallar áróðursherferð og kallað sé eftir sögum um sig.

Sannkallaður áróðursher fer í kjölfarið af stað síðasta sumar og kallar eftir sögum um mig. „Þar virðist sannleikurinn engu skipta og ekki er leitað eftir heimildum eða staðfestingum á sannleiksgildi sagnanna. Í því sambandi má benda á að kona nokkur hefur viðurkennt að hafa sent inn nokkrar sögur sem voru uppspuni frá rótum, til þess eins að sjá hvort þær fengjust birtar. Þær voru allar birtar. Nafnlaust. Ég styð heilshugar baráttu gegn kynferðisbrotum og ofbeldi en aðförin að mér, minni persónu og atvinnu, tel ég ekki framlag í þeirri baráttu,“ skrifar Ingólfur.

Hann segir hina meintu áróðursherferð hafa fengið mikið pláss í fjölmiðlum og í kommentakerfum hafi ýmsir aðilar, sem hann þekki ekki og hafi aldrei hitt, hræðileg ummæli um sig,

„Ég læt nú reyna á það gagnvart löggjafanum hvort saka megi menn opinberlega um nauðganir og barnaníð. Það er ekki gert í fjárhagslegum tilgangi en er um leið það kostnaðarsamt að það er nánast ómögulegt að verja sig með þessum hætti. Árásir gegn mér hafa verið margvíslegar og meðal annars hefur Instagram reikningur minn verið eyðilagður og aðilar villt á sér heimildir inni á miðlinum Snapchat undir notendanöfnunum ingo_vedurgud, ivedurgud og mögulega fleirum sem ég veit ekki af. Þannig hafa óprúttnir aðilar sent skilaboð í mínu nafni. Hópur kvenna, sem ég þekki ekki neitt, ákvað að mótmæla því að ég syngi á þjóðhátið í Vestmannaeyjum og fengu sínu framgengt,“ skrifar Ingólfur.

Ekki ofbeldismaður

Ingólfur segir að allir sem þekki sig og hans fólk viti að hann sé ekki ofbeldismaður.

„Ég hef alltaf staðið með þeim sem hafa orðið fyrir einelti og ofbeldi og getur fólk frá skólaárum mínum vottað fyrir það. Nú hef ég setið undir margvislegum ósannindum þar sem öllu er grautað saman og ég hef enga leið haft til þess að verja mig. Þá hafa þeir sem standa mér næst, fjölskylda og vinir, fengið að finna fyrir aðförinni gegn mér. Auk þess sem þeim þykir sárt að hlusta á ósannindi um mig hafa þau orðið fyrir grófum árásum sjálf vegna mín, svo grófum að kærasta mín þurfti til að mynda að hætta í vinnu sinni. Þetta er eitthvað sem enginn sér og fólk áttar sig kannski ekki á. Ásakanir sem þessar bitna því oft mest á saklausu fólki sem á það síst skilið,“ skrifar Ingólfur.

Árásarherinn fámennur öfgahópur - ferillinn lagður í rúst

„Þvert á móti er hann mjög fámennur en hávær hópur sem fjölmiðlar veita mikið pláss. Margir hafa haft samband við mig persónulega og lýst yfir stuðningi við mig. Oft er þetta fólk sem ég ekki þekki en þorir ekki að stíga fram og tjá sig opinberlega af ótta við hefndaraðgerðir. Ástæða þess er eðlileg, því þeir örfáu sem hafa gert það og sett spurningarmerki við aðferðina sem notuð er hafa heldur betur fengið að heyra það. Því fólki sem hefur lýst yfir stuðningi við mig og jafnvel tekið mínum málstað er ég óendanlega þakklátur.“

Ingólfur segir að starf sitt sem tónlistarmaður hafi verið lagt í rúst í kjölfar áróðursherferðinnar og skrifar:

„Þannig voru í framhaldi nánast öll mín gigg afbókuð, tónlist mín tekin úr spilun og mörg stór verkefni sem búið var að skipuleggja tekin af dagskrá. Ástæðan er ekki sú að viðkomandi aðilar trúi hinum nafnlausu frásögnum, treysti mér ekki til starfsins eða geri athugasemdir við mig, heldur sú að þeir óttast að lenda sjálfir í árásarhernum. Er sá ótti enda á rökum reistur þar sem ráðist hefur verið opinberlega á þá sem ég hef giggað hjá frá því aðförin gegn mér hófst.“

Þá hafi honum verið gert ómögulegt að reka áðurnefnt fyrirtæki sitt X-mist sem hann hafi rekið ásamt góðum vini sínum.

„Fyrirtækið hefur sætt slíkum árásum að ég sé mér ekki lengur fært að starfa við það enda hefur þessi vinur minn og fjölskylda hans liðið mest fyrir linnulausar árásir. Það er í raun ótrúlegt að upplifa hvað sumt fólk er tilbúið að ganga langt í óhróðri og lygum til þess að ná sínu fram. Tilgangurinn virðist helga meðalið og þá skiptir engu hvaða aðferðum er beitt.“

Ingólfur segir að þeir félagarnir af verið stoltir af fyrirtækinu og vörunum auk þess sem viðskiptavinir hafi verið ánægðir. Fjöldi fólks hafi tekið þátt í uppbyggingunni á fyrirtækinu sem ráðist hafi verið gegn.

„Haft hefur verið samband við fyrirtæki og verslanir með hreinum og klárum hótunum um að þessir aðilar hafi verra af ef viðskiptunum er haldið áfram. Allt er þetta gert til að koma í veg fyrir að vörur frá X- mist séu til sölu. Svo langt hefur þetta framferði gengið að haft hefur verið samband við eigendur samstarfsfyrirtækis í Bretlandi og ég sakaður um að vera nauðgari og barnaníðingur! Svo það sé tekið fram hef ég aldrei verið svo mikið sem ákærður hvað þá sakfelldur fyrir ofbeldisbrot af nokkru tagi,“ skrifar Ingólfur.

Hann segir þennan hóp og fólkt sem tengist honum ekki una  sér ekki hvíldar fyrr en hann sé orðinn fullviss um að fyrirætlanir á nýjum starfsvettvangi utan sviðsljóssins séu einnig orðnar að engu, allt í nafni réttlætis.

„Undir þessum kringumstæðum er ekki annað hægt en að velta fyrir sér raunverulegum tilgangi þeirra sem ganga hvað harðast fram. Sumir hafa til að mynda haft fjárhagslega hagsmuni af því að kalla fram bitastæðar frásagnir, allt í nafni málstaðarins væntanlega.“

Er á móti hverskyns ofbeldi

Ingólfur ítrekar að hann sé mistækur en að hann geti staðið við allt sem hann hafi sagt og gert í gegnum tíðina. Hann geti ekki orða bundist þegar að óviðeigandi hegðun, dónaskap eða skeytingarleysi, sem hann sé mögulega sekur um, sé skeytt saman við jafn vonda hluti og kynferðisofbeldi, nauðganir og barnaníð.

„Kannski þarf ég að sætta mig við að vera hluti af hópi sem hent er undir lestina og þó logið sé upp á einn og einn þá sé baráttan mikilvægari. Ég get þó ekki samþykkt það þegar um svona alvarlegar ásakanir er að ræða. Ég er á móti hverskyns ofbeldi og finn til með þeim sem hafa orðið fyrir nauðgunum og kynferðisofbeldi. Eðlilegt er að berjast gegn ofbeldi og kynferðisbrotum og bæta kerfið okkar þannig að það hlúi sem best að þolendum. Ég vona að hófstillt fólk taki yfir þessa baráttu og skilji að það að saka fólk um eitthvað sem að það hefur ekki gert mun ekki hjálpa málstaðnum. Þegar baráttan er rekin af fólki sem nýtir það til að fá athygli eða fólki sem vill sjá blóð vinnst ekki neitt. Hverjar eru annars lausnirnar sem verið er að boða?,“ skrifar Ingólfur.

Skildu eftir skilaboð