Tom Parker söngvari The Wanted er látinn 33 ára að aldri

frettinErlentLeave a Comment

The Wanted stjarnan Tom Parker lést um hádegisbilið í dag eftir að hafa greinst með banvænt krabbamein í heila. Breska drengjahljómsveitin hefur sent frá sér tilkynningu.

Söngvarinn sem var 33 ára sagði aðdáendum í október 2020 að hann væri með ólæknandi æxli í heila.

Eiginkona hans, Kelsey Hardwick, skrifaði á Instagram: „Hjörtu okkar eru brotin.“ Þau hjónin áttu saman tvö ung börn. Hún bætti við: "Tom var miðpunktur lífs okkar. Við getum ekki ímyndað okkur lífið án smitandi bross hans og kraftmikillar nærveru og við erum svo þakklát fyrir allan stuðninginn og ástina sem við höfum fundið fyrir. Nú þurfum við öll að sameinast til að tryggja að ljós Toms haldi áfram að skína fyrir fallegu börnin hans." segir Hardwick.

Hjónin giftu sig árið 2018 og eignuðust dóttur, Aurelia Rose, sem fæddist árið 2019, og soninn Bodhi, fæddan í október síðastliðnum.

Hljómsveitin segist vera mjög sorgmædd yfir dauða Parkers og að þeir hafi verið með fjölskyldu hans við dánarbeð söngvarans þegar hann lést.

Tilkynninguna má sja hér að neðan.


Skildu eftir skilaboð