John Stockton segir fjölda bólusettra íþróttamanna hafa dottið niður dauðir á vellinum

frettinErlent2 Comments

Kyrie Irving, leikstjórnandi Brooklyn Nets, og Aaron Rodgers, leikstjórnandi Green Bay Packers, eru tveir af þeim þekktustu í heiminum sem hafa ekki enn farið í COVID-19 bólusetningu. Báðir hafa þeir hlotið mikla gagnrýni fyrir, frá þeim sem trúa á bóluefnið, en mikinn stuðning frá þeim sem eru mótfallnir COVID -19 bóluefninu svokallaða.

Einn þeirra sem hefur nú hefur stigið fram og sýnt þeim Irving og Rodgers eindreginn stuðning er fyrrverandi NBA stjarnan John Stockton. Hann sagði nýlega að hann væri með lista yfir „hundruð“ bólusettra íþróttamanna sem hafa „dottið niður dauðir á vellinum“.

„Ég er núna með lista yfir á annað hundrað íþróttamenn um allan heim sem voru bólusettir og hafa dottið niður dauðir á vellinum,“ Þetta sagði Stockton á YouTube rás 23. mars 2022 sem hefur nú verið fjarlægð, en má sjá hér.  Í viðtali við The Spokesman-Review í janúar sl. sagði Stockton að tala látinna bólusettra íþróttamanna væru um 150 talsins.

Nýlega tilkynnti NFL deildin að hún myndi fresta öllum COVID-19 aðerðum fyrir bæði bólusetta og óbólusetta leikmenn og bíða menn nú eftir því hvort NBA deildin fylgi eftir.

Heimild.

2 Comments on “John Stockton segir fjölda bólusettra íþróttamanna hafa dottið niður dauðir á vellinum”

Skildu eftir skilaboð