Madonna veldur aðdáendum áhyggjum með útliti sínu

frettinErlentLeave a Comment

TikTok myndband sem söngkonan Madonna deildi fyrir Grammy verðlaunahátíðina á sunnudag hefur valdið aðdáendurum hennar áhyggjum, sem eru margir hverjir í uppnámi vegna útlits hennar.

Madonna sést í innan við 15 sekúndna myndbroti í gegnsæjum toppi án brjóstahaldara með alls kyns glingur á sér og hallar sér framan í myndavélina.

Aðdáendur fylltu athugasemdakerfin með spurningum um bólgnar varir og bólgin kinnbein en hin 63 ára gamla söngkona virðist afskræmd í andliti á myndbandinu og afar ólík sjálfri sér og virðist semsvo að hún hafi farið aðeins fram úr sér í fegrunaraðgerðum.

Einn aðdáandi tjáði sig um útlit Maddonnu og segir að nýja útlitið hafi gert sig „órólega“ og annar spurði „hvað er búin að gera við sig?“

Fleiri tjá sig og spyrja: „á hverju er hún?“  Vinsamlegast fáðu hjálp!“  Og annar spyr „Er ekki í lagi með hana?“

Madonna, sem er fremur virk á samfélagsmiðum, á það til að sjokkera aðdáendur með myndbirtingum og myndböndum og hún lætur neikvæð ummæli ekki trufla gjörninga sína á netinu. Hún var mætt aftur á TikTok á mánudagsmorgun og notaði þar nýja myndaseríu við "remix" af Frozen.

Myndbandið má sjá hér neðar.


Skildu eftir skilaboð