30% fleiri minningagreinar í Morgunblaðinu í mars 2022 en í sama mánuði undanfarin sex ár

frettinInnlendar2 Comments

Lesendur Morgunblaðsins gætu hafa tekið eftir óvenju mörgum minningagreinum og dánartilkynningum í blaðinu undanfarið. Til að mynda voru ellefu og hálf blaðsíða í síðasta föstudagsblaði og átta síður á laugardeginum með minningagreinum og andlátstilkynningum.  Guðmundi Jónssyni sem er í facebook hópnum Heildarmyndin datt í hug að reyna að staðfesta þessa fjölgun með vísindalegri aðferð.

Niðurstaðan var sú að það voru rúmlega 30% fleiri minningagreinar í Morgunblaðinu í mars 2022 en að jafnaði í marsmánuði á undanliðnum sex árum, þar á meðal á heimsfaraldursárunum 2020 og 2021. Bólusetningar við Covid hófust rétt fyrir áramótin 2021.

Nú þegar faraldurinn hefur um tíma verið á undanhaldi og um 90% fullorðinna Íslendinga hafa verið tví-og þríbólusettir við kórónuveirunni og eflaust stór hluti fólks, sérstaklega eldri borgarar, fengið inflúensusprautur líka, mættu heilbrigðisyfirvöld senda frá sér skýringar. Því ekki eru þetta allt saman Covid-dauðsföll, það stemmir ekki við tölur um Covid andlát.

2 Comments on “30% fleiri minningagreinar í Morgunblaðinu í mars 2022 en í sama mánuði undanfarin sex ár”

Skildu eftir skilaboð