Aðeins þriðjungur Bandaríkjamanna sáttur við störf Joe Biden forseta

frettinErlentLeave a Comment

Aðeins einn af hverjum þremur Bandaríkjamönnum er sáttur við frammistöðu Joe Biden í forsetastóli, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Quinnipiac háskólans. Þetta er versta útkoma Biden til þessa.

Þá sögðust 54% svarenda vera ósáttir með frammistöðu Biden, þar sem 43% sögðust „mjög“ ósáttir. Aftur á móti sögðust aðeins 18% vera mjög sáttir við frammistöðu forsetans.

Þeir sem sögðust ekki vita eða neituðu að svara spurningunni voru 13%, sem er hæsta hlutfall í könnuninni síðan í janúar.

Skildu eftir skilaboð