Tuttugu og tveir ökumenn teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur um helgina

frettinInnlendar1 Comment

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tuttugu og tvo ökumenn fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fimmtán þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, fjórir í Kópavogi og einn í Garðabæ, Hafnarfirði og á Seltjarnarnesi. Þrír voru teknir á föstudagskvöld, ellefu á laugardag, fimm á sunnudag og þrír aðfaranótt mánudags.

Að sögn lögreglu voru þetta tuttugu karlar á aldrinum 17-44 ára og tvær konur, 33 og 60 ára. Sex þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og sex hafa aldrei öðlast ökuréttindi.

Þá voru tólf líkamsárásir tilkynntar til lögreglu, þar af þrjár alvarlegar. Þá fór lögreglan í fjögur útköll vegna heimilisofbeldis.

Þetta kemur fram á fésbókarsíðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

One Comment on “Tuttugu og tveir ökumenn teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur um helgina”

Skildu eftir skilaboð