Fauci fellir grímuna – telur sig vera hafinn yfir lög – genginn af göflunum?

frettinErlent1 Comment

Eftir dóm alríkisdómstólsins í Flórída núna í apríl sem ógilti reglur um grímuskyldu í almenningssamgöngum eru Bandaríkjamenn loksins farnir að taka af sér grímur í rútum, lestum og flugvélum. En það eru ekki allir ánægðir með ákvörðun dómstólsins.

Hinn mjög svo umdeildi Dr. Anthony Fauci var ósáttur við ákvörðun dómstólsins og gagnrýndi dómstólinn í fjölmiðlum.  Í viðtali á CNN+ sagði Fauci meðal annars: „Vegna fjölda þjálfaðra faraldsfræðinga og vísindamanna hjá CDC (Sóttvarnarstofnun Bandaríkjanna), er stofnunin fær um að gera spár og leggja fram tillögur. Miklu fremur en dómari með enga reynslu af lýðheilsu.“

Eftir ummæli Fauci kom Dr. Robert Malone, sá sem fann upp mRNA tæknina fram í þættinum The War Room þar sem hann sagði: „Tony er loksins að opinbera það að hann telji heilbrigðiskerfið vera hafið yfir lögin. Það er það sem hann er að segja. Og ég velti því fyrir mér hvort þetta sé fyrirboði um hvaða vörn hann ætlar að beita ef Ron Johnson öldungadeildarþingmanns verður gerður að yfirmanni þingrannsóknarinnar vegna þess að Tony Fauci þarf að bera ábyrgð og hann er nú þegar að spila með kerfið með því að segja: „Hæ, ég er hafinn yfir lögin.“ Það er bókstaflega það sem hann er að segja. Hann er að segja að hann sé ekki aðeins hafinn yfir lögin, heldur CDC og allt HHS og lýðheilsuinnviði í Bandaríkjunum. Það má ekki leyfa slíkt.“

Malone bætti síðan við: „Tony Fauci er genginn af göflunum. Hann hefur misst stjórn á sjálfum sér. Og hann trúði því alltaf að hann væri sem keisari, að hann væri hafinn yfir alla ábyrgð. Og við hlógum öll að [orðum hans] „Ég er vísindin“ en nú sjáum við hvernig það birtist. Tony Fauci telur að hann sé algjörlega hafinn yfir lögin. Hann trúir því að hann sé einráður sem keisari og beri enga ábyrgð.“

Fauci hefur verið til rannsóknar hjá Bandaríkjaþingi fyrir spillingu og vafasöm vinnubrögð og ekki er ólíklegt að stjórnleysi Fauci nú megi rekja til þess að hann skynji það að dagar hans í embætti séu brátt taldir og hann verði látinn bera ábyrgð á þeim hörmungum sem hann hefur valdið fólki.

Heimild.

One Comment on “Fauci fellir grímuna – telur sig vera hafinn yfir lög – genginn af göflunum?”

  1. Er ekki hissa að hann sé að ganga af göflunum þegar hann sér netið þéttast að sér og lýgin afhjúpast með hverjum deginum.
    Ég veit ekki betur en að breskur lögmaður sé búinn að stefna honum, Bill Gates, forstjórum bóluefnanna og heilbrigisstarfsforkólfum Brelands, til Haag ásamt öðrum fyrir að hafa framið glæp gegn mankyninu.

Skildu eftir skilaboð