Geðheilsa á ekki að vera forréttindi

frettinPistlarLeave a Comment

Ingibjörg Gróa Gunnarsdóttir skrifar:

Helsta dánarorsök einstaklinga á aldrinum 15-29 ára á Íslandi eru sjálfsvíg og að meðaltali falla 39 einstaklingar fyrir eigin hendi á hverju ári. Birtingarmyndir geðsjúkdóma eru þó margvíslegar og má því þrefalda tölu andláta af völdum geðsjúkdóma í heild, því sjálfsvíg eru aðeins brot af birtingarmynd geðræns vanda.

Þrátt fyrir að geðsjúkdómar sé einn stærsti vandi nútímasamfélags og sjálfvígstölur háar víðsvegar um heim, er Dannmörk, nágrannaþjóð okkar sem við berum okkur reglulega saman við lægst þar á lista. Og liggur því ljóst fyrir að við getum gert mun betur og verðum að gera mun betur í geðheilbrigðismálum enda spurning um líf ungra sem eldri einstaklinga í þjóðfélaginu okkar.

Valkostir og fórnarkostnaður

Þegar fjármagn er af skornum skammti og ákveða þarf hvað skal velja og hverju skal fórna er horft til fórnarkostnaðar. Fórnakostnaður er sá kostnaður sem tapast við að velja ekki ákveðinn valmöguleika. Seinustu ár hefur íslenska ríkið eytt 11 milljörðum í PCR próf vegna COVID-19. Hversu mörgum mannslífum björguðu þessir 11 milljarðar? Var borið saman hversu mörgum mannslífum þau höfðu bjargað hefði fjármagnið farið til geðheilbrigðismála?

Nú liggur fyrir að geðdeild Landspítalans er í ómannúðlegum húsakynnum þar sem aðstæðan er óboðleg ásamt því að plássleysi er ríkjandi. Þrátt fyrir að margoft sé búið að vekja athygli á þessum vanda þótti ekki tilefni til að gera ráð fyrir nýrri geðdeild á nýja Landspítalanum. Vissulega er hægt að sækja sér sálfræðiaðstoð á einkareknum stofum en viðtalstíminn kostar þar á bilinu 17-21.000 og biðtími allt að 3-6 mánuðir. Nýjustu fréttir sýna að heilsugæslurnar hafa ekki undan að sinna tilfellum sem koma inn á borð þar og allt að árs bið eftir sálfræðiaðstoð. Geðheilbrigði á ekki að vera forréttindi byggð á efnahag einstaklings og því mikilvægt að bregðast strax við þessum vanda, koma sálfræðingum inn í alla grunn og framhaldsskóla á landinu ásamt því að fara í róttækar breytingar á heilbrigðiskerfinu þegar kemur að geðheilsu.

Geðheilbrigðismál og sérstaklega forvarnir gegn sjálfsvígum standa mér afar nærri. Ég nýti hvert færi sem gefst til að vekja athygli á þessum risastóru málum og berjast fyrir úrbótum, nú síðast með því að taka sæti á lista Bæjarlistans í Hafnarfirði í bæjarstjórnarkosningum.

Höfundur skipar 8. sæti á lista Bæjarlistans í Hafnarfirði.  (Greinin birtist fyrst á Visi.is 4. maí 2022).

Skildu eftir skilaboð