Mikil aukning andvana fæðinga og nýburadauða á Íslandi vekur athygli erlendis

frettinPistlar, Þórdís B. SigurþórsdóttirLeave a Comment

Hagstofa Íslands sendi frá sér skýrslu um fjölda fæðinga á Íslandi fyrir árið 2021, þann 28. apríl sl.

Fjöldi lifandi fæddra barna á Íslandi árið 2021 var 4.879 sem er fjölgun frá árinu 2020 þegar 4.512 börn fæddust. Einungis þrisvar áður hafa fleiri lifandi fædd börn komið í heiminn á einu ári, árin 2009-2010 og 1960.

Það sem ekki kemur fram í skýrslu Hagstofunnar er sú mikla fjölgun andvana fæðinga  og nýburadauða sem nánast tvöfaldaðist frá árinu áður, 2020. Þessar tölur má þó allar nálgast í töflunni Andvana fæddd börn og ungbarnadauði 1951-2021.

Þar má sjá að andvana fæddum börnum fjölgaði árið 2021 um 8 frá árinu áður.  Árið 2020 voru 9 andvana fæðingar en 17 árið 2021. Andvana fæddum per 1000 lifandi fæddra barna fjölgar úr 2,0 í 3,5 milli ára. Leita þarf aftur til ársins 2004 til að fá sama fjölda og árið 2021.

Meðaltal andvana fæddra barna per 1000 lifandi barna á árunum 2011 - 2020 er 2 per 1000. Aukningin er því 75% miðað við meðaltal síðustu níu ára þar áður.

Aukning á burðarmálsdauða er 82% á árinu 2021 miðað við meðaltal síðustu níu ára þar á undan. Burðarmálsdauði er samtala andvana fæddra og barna sem deyja innan viku frá fæðingu af 1.000 fæddum alls.

Í breskri skýrslu frá árinu 2018, segir að andvana fæðingar í Evrópu séu á bilinu 2.3 per þúsund lifandi fæddra barna (á Kýpur, Íslandi, Danmörku, Finnlandi og Hollandi) til 3.4 eða meira (í Lettlandi, Írlandi, Rúmeníu, Slóvakíu, Ungverjalandi og Búlgaríu).

Á árinu 2021 er Ísland því á sama róli og síðarnefndu þjóðirnar. Á árunum 2011 - 2020 var fjöldi andvana fæðinga per 1000 lifandi fæðinga hér á landi á bilinu 0,9 - 2,5. Fyrir árið 2021 er talan 3,5.

Talan yfir fjölda dána á fyrsta aldursári jókst á síðasta ári um 100% miðað við meðaltal síðustu níu ára þar á undan.

Fréttin tók saman upplýsingar frá Hagstofunni og birti 29.apríl sl.

Fréttin birtist í breska miðlinum Daily Sceptic

Þorsteinn Siglaugsson hagfræðingur skrifaði síðan ítarlegri frétt um málið á breska netmiðlinum Daily Sceptic og benti meðal annars á að sumar rannsóknir hafi gefið til kynna hugsanlegt samband milli andvana fæðinga og COVID-19 sýkingar, en aðrar hafa ekki fundið nein tengsl.

Á Íslandi voru tæplega 6.000 tilfelli af COVID-19 tilkynnt árið 2020 og 21.000 árið 2021, tæplega þriðjungur þeirra á síðasta mánuði ársins þegar Omicron gerði vart við sig.

Heimsfaraldurinn og fjöldabólusetningar

Í grein Þorsteins segir einnig að á fyrsta ári COVID-19 heimsfaraldursins, 2020, hafi engin aukning verið á andvana fæddum eða nýburadauða umfram meðaltal. Engin ungbarnadauðsföll hafa verið rakin til COVID-19 samkvæmt opinberum gögnum.

Fjöldabólusetning gegn COVID-19 hófst snemma árs 2021 og 15. júlí höfðu 70% þjóðarinnar verið fullbólusett. Ellefu tilfelli fósturskemmda eftir bólusetningu höfðu verið tilkynnt til Lyfjastofnunar fyrir apríl 2022. Til dagsins í dag hefur Lyfjastofnun borist 26 tilkynningar um aukaverkanir tengdum meðgöngu og nýburum (sjá töfluna Tilkynninar sendar í EudraVigilance).

Fréttin vekur athygli erlendis

Þessi mikla frétt virðist ekki hafa náð athygli helstu og ábyrgu fjölmiðlanna hérlendis.  Aftur á móti vakti hún athygli erlendis og birtist á nokkrum minni netmiðlum og fréttasíðum og varð fljótt mest lesna frétt á fréttin.is og er það enn. Umferð erlendis frá á vefinn jókst um helming.

Þar má nefna miðilinn Daily Exposé hvers blaðamenn eru iðnir við að vakta og greina gögn opinberra stofnana, færeyska miðilinn Hinvegin, hollenska miðilinn Frontnieuws, bloggsíðu í Kóreu, American Journal, Mirastnews í Frakklandi, grískan miðil o.fl.

Það vekur athygli að málið skuli ekki vekja athygli hér á landi, en Ísland hefur lengi státað af lágri tíðni andvana fæðinga og ungbarnadauða. Þykir það ekki fréttnæmt að Ísland sé komið í hóp með Rúmeníu, Búlgaríu og fleiri fátækari Evrópulöndum hvað þetta snertir?

Eru opinber gögn Hagstofu Íslands kannski flokkuð sem upplýsingaóreiða eða samsæriskenning?

Skildu eftir skilaboð