Stór jarðskjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu

frettinInnlendarLeave a Comment

Stór jarðskjálfti upp á 4.8 að stærð fannst á suðvesturhorninu rétt í þessu. Fyrstu viðbrögð veðurstofunnar voru að sjálftinn hafi verið „nokkuð stór“ og fundist víða.

Upptök skjálftans eru talin hafa verið á Reykjanesi.

Talsverð skjálftavirkni hefur mælst á Reykjanesskaganum síðustu vikuna og hefur virknin verið hvað mest við Svartsengi og í nágrenni Grindavíkur. Alls hafa um 1.700 skjálftar mælst í sjálfvirka kerfinu á þessu svæði í vikunni, sá stærsti um 2.9 að stærð, segir á vef veðurstofunnar.

Skildu eftir skilaboð